145. löggjafarþing — 119. fundur,  26. maí 2016.

þjóðaröryggisráð.

784. mál
[17:42]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Ég lýsi ánægju minni með að þetta frumvarp sé komið fram. Það er einu sinni svo að þegar Varnarmálastofnun var lögð af, sem aldrei skyldi verið hafa, varð visst tómarúm í þeim málum hér. Ég vona satt að segja að skipan þjóðaröryggisráðs sé ávísun á það að við ætlum að taka öryggismál okkar föstum tökum og setja þau undir einn hatt en ekki marga eins og verið hefur undanfarin ár, síðan Varnarmálastofnun lagðist af.

Það er hins vegar eitt atriði. Það segir hér að grundvallarforsenda stefnunnar, þ.e. þjóðaröryggisstefnu, sé staða Íslands sem fámennrar eyþjóðar sem hvorki hefur burði né vilja til að ráða yfir her og tryggir öryggi sitt og varnir með virkri samvinnu við önnur ríki og innan alþjóðastofnana Það segir líka að stefnan skuli taka til hnattrænna, samfélagslegra og hernaðarlegra áhættuþátta og felist í virkri utanríkisstefnu og almannaöryggi og varnarsamstarfs við önnur ríki og með þjóðaröryggi sé átt við öryggi gagnvart ógnum sem kynnu að valda borgurum, stjórnkerfum og grunnvirkjum samfélagsins stórfelldum skaða, hvort sem það er af innri eða ytri ógnum og/eða vegna náttúruhamfara.

Einnig segir að hlutverk þjóðaröryggisráðsins verði að meta ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum með reglulegum hætti, hafa eftirlit með framfylgd þjóðaröryggisstefnunnar, endurspegla þá breiðu sýn á þjóðaröryggi sem birtist í stefnunni og standa fyrir endurskoðun hennar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Þetta þykir mér allt gott en ég vil samt gera athugasemd við 3. gr. frumvarpsins. Þar segir, með leyfi forseta:

„Í þjóðaröryggisráði eiga sæti, auk forsætisráðherra, ráðherra sem fer með utanríkis- og varnarmál og ráðherra sem fer með almannavarnir, auk ráðuneytisstjóra viðkomandi ráðuneyta. Jafnframt skulu ríkislögreglustjóri og forstjóri Landhelgisgæslunnar eiga sæti í ráðinu.“

Þarna vantar einn mann og það er tollstjórinn, vegna þess að tollgæslan í landinu er útvörður okkar á landamærum og það er næsta víst að hvað sem gerast kann, hvort sem það eru hryðjuverk eða önnur ógn, jafnvel ógnir af völdum sjúkdóma sem upp koma erlendis og hætta er á að berist hingað, mun tollgæslan eiga hlutverk. Þess vegna er það alveg bráðnauðsynlegt að tollstjórinn eigi sæti í þjóðaröryggisráði, til þess að geta skipað mönnum sínum í sveit ef til þarf að koma. Ég beini því þess vegna til hæstv. ráðherra og nefndarinnar sem mun taka við að tollstjóranum verði bætt inn í 3. gr. frumvarpsins svo að ég þurfi ekki að koma með breytingartillögu í þá átt, sem ég mun annars gera.

Ég tel alveg einsýnt að verkefni tollgæslunnar á landamærum sé það víðfemt og það mikilvægt fyrir öryggi okkar að algjörlega nauðsynlegt sé að tollgæslan hafi aðkomu hér að.

Að öðru leyti endurtek ég að ég fagna því að þetta frumvarp sé komið fram. Ég fagna því að þessi mál eigi að skýrast og ekki vera eins óskýr og þau hafa verið um nokkurra ára skeið. Ég vona að þetta sé ávísun á það að við munum innan einhvers tíma sjá þjóðaröryggisstofnun verða til sem mun verða samhæfingarstofnun og fara með forsvar þess að við getum verið örugg í okkar góða landi. Að öðru leyti ítreka ég fögnuð minn yfir frumvarpinu.