þjónusta við börn með geðvanda eða fjölþættan vanda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina, hún lýtur að því hvort Stjórnarráðið hafi látið vinna mat á þjóðhagslegum ávinningi þess að þjónusta börn með geðvanda eða fjölþættan vanda. Því er til að svara að mér er ekki kunnugt um að slíkt mat hafi farið fram á vegum Stjórnarráðsins. Hins vegar eru til rannsóknir, eins og hv. þingmaður gat um áðan, sem varða ýmislegt sem lýtur að þjónustu við börn og mikilvægi þess að gripið sé snemma inn í vanda barna til að koma í veg fyrir og reyna að freista þess að sá vandi sem viðkomandi er að glíma við þróist á verri veg.
Það er alþekkt, og segir sig sjálft, að þeim úrræðum sem grípa þarf til þegar mál eru orðin alvarlegri fylgir meiri kostnaður, þau eru flóknari en ef inngrip hefði átt sér stað til muna fyrr. Hægt er að fullyrða um krónutöluna með þessum hætti en ég held að við getum öll verið sammála um að enginn leggur í þann leiðangur að reyna að slá verðmati á hugarangur eða álag á börn og fjölskyldur þeirra. Ekki er þó endilega samasemmerki á milli þess að grípa snemma inn í og afstýra því að geðvandi verði alvarlegur en í yfirgnæfandi meiri hluta tilvika er raunin sú.
Hv. fyrirspyrjandi nefndi hér geðheilbrigðisáætlun sem var nýlega samþykkt á Alþingi. Af henni má sjá þær áherslur sem lagðar eru þar á skimun og að gripið sé í taumana ef börn skimast með kvíða eða þunglyndi. Sömuleiðis er lögð áhersla á að styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu sem miðar meðal annars að því að börnin fái sem best atlæti í uppvexti sínum og þar með talið að auka líkur á að gripið sé í taumana sem fyrst og leita úrræða ef vandi kemur fram af hvaða toga svo sem hann kann að vera.
Það er mitt mat að koma þurfi í veg fyrir að börn með geðvanda þurfi að bíða eftir þjónustu. Tíminn líður fljótt og tími sem okkur sem erum komin á fullorðinsár finnst stuttur er afskaplega langur í lífi barns.