145. löggjafarþing — 121. fundur,  30. maí 2016.

almennar stjórnmálaumræður.

[19:36]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkinguna tala Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, í annarri Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvest., og í þeirri þriðju Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 5. þm. Norðvest.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Elín Hirst, 13. þm. Suðvest., í annarri umferð, en í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurk.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvest., í annarri, en í þriðju umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvest.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra í annarri og Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvest., í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykv. s., í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðaust., en í þriðju umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykv. s.

Ræðumenn Pírata eru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykv. s., í annarri, en í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvest.