almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Fyrstu fíflar vorsins hafa nú þegar fullþroskast og biðukollurnar við Stjórnarráðið bíða eftir því að vindurinn feyki þeim á vit ævintýranna. Þegar síðust biðukollurnar munu kveðja sumarið næsta haust verður þessi þingi vonandi slitið og í kjölfarið gengið til alþingiskosninga eftir afdrifaríkt kjörtímabil.
Alþingi Íslendinga hefur sjaldan notið eins lítils trausts og nú og engin furða. Þetta kjörtímabil hefur einkennst af lýðræðishalla. Ekki vegna þess að það séu ekki 38 þingmenn sem styðja ríkisstjórnina, heldur vegna þess hvernig ríkisstjórnin hefur sniðgengið hefðbundna lýðræðislega ferla, ítrekað svikið gefin loforð og verið þjóð og þingi til háborinnar skammar í fjölmörgum hneykslismálum. Af þeim ber hæst afsögn fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Það veldur mér áhyggjum að sjá hversu lítið traust almenningur ber til Alþingis. En ekki er nema von að svo sé. Það sem hefur einkennt þennan fyrsta vetur minn sem þingmanns er óreiða og skipulagsleysi. Það er aldrei hægt að undirbúa sig fyrir þingstörf komandi viku með fyrirvara þar sem dagskrá næsta þingfundar er að jafnaði ákveðin með minna en sólarhringsfyrirvara. Það gengur ekki að við séum komin á 21. öldina og getum ekki fengið upplýsingar um dagskrá þingfundar viku fram í tímann.
Það gengur ekki hversu lokað upplýsingaferlið er innan Alþingis. Þá ekki síst að nefndarfundir séu lokaðir en Píratar hafa einmitt lagt fram frumvarp þess efnis að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði haldnir í heyranda hljóði. Ákvarðanir þingsins í heild þurfa að vera hafnar yfir allan vafa og þess vegna þarf að opna nefndarfundi.
Það gengur heldur ekki að ríkisstjórnin leggi fram frumvörp sín á allra síðustu dögum þingsins og ætlist til þess að fá í gegn heilu kerfisbreytingarnar sem einfaldlega þarfnast meiri umræðu og umhugsunartíma.
Það gengur heldur ekki að ríkisstjórnin geti einfaldlega treyst á tímaþröng þingmanna og skipulagsleysi þingsins til þess að knýja mál sín í gegn. Svona skipulagsleysi og ógagnsæi ýtir undir tortryggni og gerir að verkum að þingmenn geta ekki sinnt skyldum sínum af kostgæfni. Ég veit að það er alveg hægt að gera betur. Þetta er einfaldlega spurning um vilja.
Virðulegi forseti. Forsenda þess að Alþingi geti verið stólparót lýðræðis og laga í landinu sem við búum í er sú að til staðar sé sameiginlegur grundvallarskilningur á því í hverju lýðræðið felst. Ég upplifi það nefnilega þannig að við búum í landi þar sem stjórnvöld skilja ekki lýðræði, í samfélagi þar sem valdhafar svívirða vilja þjóðarinnar og saka andmælendur sína um að traðka á lýðræðinu.
Lýðræðið er ekki einungis um kosningar á fjögurra ára fresti. Lýðræði er spurning um að geta treyst ferlunum. Það hefur komið á daginn að við getum það ekki. Lýðræðið snýst líka um að virða vilja þjóðarinnar og það hefur komið algjörlega á daginn að meiri hluti þessa þings gerir það ekki.
Þegar traust á þeim lýðræðislegu ferlum sem við erum með til að tryggja réttlæti er ekki til staðar þá set ég spurningarmerki við það hvort við séum í reynd með lýðræði. Þegar í sífellu er hægt að sniðganga hefðbundnar leiðir, samráð og loforð eins og enginn sé morgundagurinn án þess að það hafi neinar afleiðingar þá set ég spurningarmerki við það hversu lýðræðislegt Ísland sé í raun og veru.
Virðulegi forseti. Undanfarnar vikur hafa hv. þingmenn meiri hlutans talað um það sem móðgun við lýðræðið að gera kröfu um að virða vilja þjóðarinnar og efna loforð sitt við hana með því að ganga til kosninga og með því að kjörnir fulltrúar sæti pólitískri ábyrgð. Eins og hæstv. fjármálaráðherra sagði eftirminnilega hér í þinginu: Meiri hlutinn ræður. Það er að vissu leyti rétt. Í lýðræði ræður meiri hlutinn á endanum. Misskilningurinn er sá að hæstv. fjármálaráðherra átti við meiri hluta þingsins, ég á við meiri hluta þjóðarinnar.
Þó svo að samkvæmt lögum sé það þannig að meiri hluti þingsins fari með öll völd í landinu á milli kosninga þýðir það ekki að það sé lýðræðislegt. Þvert á móti er það arfur frá ráðgjafarþingum einvalda 19. aldar og óheftu elítulýðræði fyrri hluta 20. aldar að þjóðin sé valdalaus á milli kosninga. Þess vegna er sérstaklega holur hljómur í því þegar þingmenn meiri hlutans og andlegur leiðtogi þeirra í forsetaframboði vísa í sterkan þingmeirihluta sem rök fyrir því að vilji þjóðarinnar sé andlýðræðislegur.
Lýðræðishugsjónin gengur út á að þjóðin sé fullvalda, að það sé að lokum hún sem hefur valdið yfir eigin samfélagi. Það þýðir ekki að endalaust þurfi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um öll mál. En það þýðir að þjóðin á rétt á lokaorðinu og að valdhafar eiga að virða vilja hennar í öllum sínum störfum, orðum og gjörðum.
Virðulegi forseti. Lýðræði og lögræði er ekki það sama. Ekki frekar en löglegt er það sama og siðlegt. Við viljum búa í réttarríki þar sem lögum er fylgt. Við viljum líka búa í samfélagi þar sem löglegir valdhafar virða lýðræðið og trúa á það. Alveg eins og við viljum að lögum um skattframtöl sé fylgt þá viljum við líka að stjórnmálamenn upplýsi almenning um stórtæka hagsmuni sína og við viljum ekki að efnafólk komi fjársjóðum sínum í felur í skattaskjólum. Að segjast bara að vera að framfylgja lögum hefur ekki verið sérstaklega góð málsvörn í gegnum mannkynssöguna og hún er enn aumari þegar menn hafa sjálfir sett lögin.
Það er vissulega löglegt að hunsa þjóðaratkvæðagreiðslur, keyra þingmál í gegn á síðustu stundu, svíkja gefin loforð við þjóðina, svívirða þjóðarviljann og sitja sem fastast hvað sem á gengur, hversu rúin trausti og umboði sem stjórnvöld eru, en það er ekki lýðræðislegt. Það er lítilsvirðing gagnvart okkur öllum og það er viðhorf sem mun vonandi brátt heyra sögunni til. — Gleðilegt sumar.