almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Það skiptir máli hverjir stjórna. Jafnaðarmenn vilja eitt samfélag fyrir alla, gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu, auðlindir í þjóðareign, betra fiskveiðistjórnarkerfi, menntun fyrir alla, jöfnuð og samábyrgð. En við búum í samfélagi þar sem góðærið er fyrir hina ríku, þar sem spilling og sérgæska hafa grafið um sig. Ráðherrar hafa orðið uppvísir að því að geyma fjármuni í aflandsfélögum og skattaskjólum en sitja sem fastast á ráðherrastóli og neita að segja af sér.
Spillt hugarfar er mein í íslensku samfélagi. Hér gilda ekki sömu reglur fyrir alla. Auðmannadekur og einkavinavæðing hafa verið leidd til öndvegis í staðinn fyrir samstöðu með íbúum landsins og velferð þeirra. Við horfum upp á niðurbrot mikilvægra samfélagsstoða, skilningsleysi á þýðingu velferðargilda, undanlátssemi við þá sem mest mega sín og skeytingarleysi um þá sem minnst mega sín. Við horfum upp á vanrækslu þeirra meginstoða sem gengnar kynslóðir strituðu við að byggja upp til að skapa hér gott samfélag. Fátæktin sem við töldum okkur hafa útrýmt um miðbik síðustu aldar hefur aftur lætt sér inn í samfélag okkar eins og lúsin. Nú búa um 9 þús. börn á heimilum undir lágtekjumörkum. Ungt fólk er fast í fátæktargildru á leigumarkaði og fátækt aldraðra hefur aukist. Þó fljóta milljarðarnir yfir barma ríkissjóðs. Sjávarútvegur og ferðaþjónusta mala gull og hafa aldrei staðið betur. Í þannig árferði mundu siðuð stjórnvöld jafna lífskjör og létta byrðar þeirra sem höllum fæti standa. En ekki sú ríkisstjórn sem nú situr. Hún notar góðærið sem hún fékk í arf til þess að búa í haginn fyrir auðmenn en fækka tækifærum hinna efnaminni.
Það skiptir máli hverjir stjórna. Nú væri hægt að gefa öllum tækifæri til menntunar og þar með aukna möguleika til lífsgæða. Þess í stað er verið að skerða aðgengi fólks að námi með því að herða námslánareglur og meina fullorðnu fólki að ganga í framhaldsskóla.
Sjúklingar búa margir við óheyrilegan heilbrigðiskostnað. Nú væri lag að koma á gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu í stað þess að láta veikt fólk bera byrðar af heilbrigðiskostnaði annarra sjúklinga eins og ætlunin er. Hægt og bítandi er verið að ýta fólki inn í einkarekin heilbrigðis- og menntakerfi með því að fjársvelta svo hið opinbera kerfi að það rís ekki undir hlutverki sínu.
Nú væri lag að beita jöfnunaraðgerðum í skattkerfinu, fjölga skattþrepum, lyfta skattleysismörkum, í stað þess að lækka skatta á auðmenn og hlífa stórgróða atvinnuvegum við eðlilegri gjaldtöku. Nú væri lag að laða fólk að landsbyggðinni með grænum greiðslum og byggðatengdum skattaívilnunum, því að hvers vegna ættu ívilnanir aðeins að gagnast stórfyrirækjum og erlendum fjárfestum? Nú væri lag að rétta við og jafna stöðu byggðanna í landinu, stuðla að sjálfbærri byggðaþróun með góðum samgöngum og öflugum nettengingum svo að hægt sé að sameina sveitarfélög, atvinnu-, búsetu- og þjónustusvæði. Þess í stað liggur vegakerfið undir skemmdum, er það þó æðakerfi landsins, forsenda þess að byggðirnar standi jafnfætis og nái vopnum sínum á ný eftir viðvarandi fólksflótta undanfarna áratugi. Ferðaþjónustan, hin nýja auðlind, gæti komið mörgum byggðum til bjargar en þá er svo illa búið að innviðum að þeir standast ekki álagið vegna hennar.
Það skiptir máli hverjir stjórna. Nú ætti að vera lag til að skapa heilbrigðar leikreglur í atvinnulífinu, ekki síst í sjávarútveginum, svo að byggðirnar geti nýtt sér auðlindir sínar. Byggðaröskun undanfarinna áratuga er nefnilega ekki náttúrulögmál. Hún er mannanna verk og henni mætti snúa við með réttum aðgerðum. Byggðirnar þurfa ekki plástra á svöðusár sín heldur sanngjarnar leikreglur svo þær fái bjargað sér sjálfar og fái notið náttúrugæða sinna og mannauðs svo að fólk geti fæðst, lifað og dáið í sinni heimabyggð við sama atlæti og aðrir landsmenn.
Þrátt fyrir góðærið sem þessi ríkisstjórn fékk í vöggugjöf er velferðarkerfi okkar í miklum vanda og menntakerfið í alvarlegum þrengingum. Fólk flytur frá landinu. Skuldugur almenningur berst í bökkum en ríkisstjórnin forgangsraðar í þágu hinna ríku og fáu á kostnað hinna mörgu og smáu.
Það skiptir máli hverjir stjórna, kæru landsmenn. Þess vegna er lífsspursmál fyrir samfélag okkar að koma nýjum stjórnvöldum að. Leiðarstjarnan sem fólkið í landinu þarf nú á að halda er krafan um jöfnuð, réttlæti og samábyrgð. Það er krafan um eitt samfélag fyrir alla. Íslendingar eiga val í næstu kosningum. Þá er vert að muna að það skiptir máli hverjir stjórna. — Gleðilegt sumar.