145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.

787. mál
[14:57]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessu frumvarpi og markmiðum þess eins og þeim er lýst. Um leið sé ég mig nú knúna til þess að koma upp og árétta að allt er best í hófi. Meðalhófið þarf alltaf að vera leiðarljósið þegar menn setja íþyngjandi reglur. Hæstv. fjármálaráðherra fór ágætlega yfir það að með sumum ákvæðum í frumvarpinu væri vissulega gengið fram á ystu nöf með hliðsjón af mannréttindum og öðru. Ég tek undir það ákvæði sem hann reifaði í ræðu um skyldu lögmanna til að upplýsa um kúnna sína og jafnvel þá sem leita til þeirra. Um það segir lítið í greinargerð og þess vegna langar mig að spyrja ráðherrann hvort einhver dæmi séu um að þessari reglu sé beitt og hvort hún sé í gildi í einhverjum öðrum löndum. Þá vísa ég (Forseti hringir.) sérstaklega til ákvæða er varða lögmenn.