145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.

787. mál
[15:22]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Eins og ég held að komið hafi skýrt fram í ræðu minni tel ég þetta frumvarp vera ágætisbyrjun. En ég tel að það megi ganga mun lengra.

Ég tel að efnahags- og viðskiptanefnd eigi að gera það og fara yfir þetta frumvarp sem byggir á tillögum. Það sést á því að það byggir á tillögum þeirra stofnanna sem sjá um stofnframkvæmd.

Það er gott að verið er að hlusta á þær. Það hefur líka komið alveg klárt fram hjá þeim á fundum nefndarinnar að þessar stofnanir bentu á að þetta væru ekki nýjar upplýsingar, þau hafi bent á þetta um talsvert skeið. Þar voru einmitt nefndar þær reglur sem innleiddar voru, CFC-reglurnar, og að þær hefðu verið mikið framfaraskref. Auðvitað voru gerðir upplýsingaskiptasamningar sem ég held nú að hafi verið a.m.k. ríflega 30 á síðasta kjörtímabili. Sá hv. þingmaður sem næstur er á mælendaskrá gæti kannski rifjað það betur upp.

Að ganga lengra? Jú. Ég gerði sérstaklega að umtalsefni þunna eiginfjármögnun. Við höfum hins vegar líka rætt, og það er hárrétt, að verið er að ganga miklu lengra núna innan Evrópusambandsins, innan OECD, en við höfum séð áður.

Ég nefni þær reglur sem núna eru til umræðu í Bretlandi sem lúta að upplýsingum um skattskylda starfsemi milli landa og miða sérstaklega að þeim lágskattasvæðum sem kallast Jersey og Guernsey, þær eyjar hafa verið mest áberandi í bresku umræðunni þar sem verið er að stíga miklu róttækari skref en við höfum áður séð í þessum efnum.

Það er í kjölfar leiðtogafundar gegn spillingu sem var haldinn á dögunum þar sem 300 hagfræðingar sendu þjóðarleiðtogum áskorun þar sem hvatt var til þess að aflandsfélög í skattaskjólum yrðu bara bönnuð af því að það væri ekkert heilbrigt við slík félög eða fyrirtæki. Þau væru fyrst og fremst til þess fallin að skekkja heilbrigt viðskiptaumhverfi. Þau hefðu ekki nokkurn einasta efnahagslegan hvata, hvorki fyrir þróuð ríki né þróunarlönd.

Varðandi spurningu hv. þingmanns vil ég hlusta á það þegar jafn ólíkir fræðimenn úr jafn ólíkum áttum koma og hvetja ríki heimsins einfaldlega til þess að banna aflandsfélög. Ég held að það sé (Forseti hringir.) nokkuð sem við eigum að bregðast við, að sjálfsögðu.