145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.

787. mál
[16:07]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur spurningar hennar. Varðandi þetta mál, þunna eigin fjármögnun, sem var til meðferðar í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og ákveðið var að vísa til hæstv. ráðherra, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að taka umræðu um það og hvernig við klárum það mál. Ef við viljum frekari úrlausnir í þeim efnum og hægt er að taka einhver skref í því, sé ég ekkert því til fyrirstöðu að taka málið upp í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Hv. nefnd hefur nefnilega verið mjög opin fyrir því að taka á mjög mörgum málum eins og dæmið um þetta mál sýnir, hvernig hv. efnahags- og viðskiptanefnd brást við í kjölfar atburðarásarinnar um Panama-lekann og skjölin, að kalla aðila á sinn fund og fá fram upplýsingar og leiða það fram í ályktun og skýrslu. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu. Ég sagði í ræðu minni að mér þætti vænt um að heyra álit hæstv. ráðherra á því þegar hann tekur utan um umræðuna í lokin.

Varðandi rannsókn á umfangi og eðli skattaskjóla og aflandsfélaga og hvort hún sé á vettvangi framkvæmdarvaldsins eða Alþingis þá held ég að það sé ágætt að starfshópur sem hæstv. ráðherra skipaði fari í þá vinnu með skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra og við getum þá metið það (Forseti hringir.) í framhaldi af þeim upplýsingum sem koma þar fram hvort við tökum þetta lengra og inn á vettvang Alþingis.