145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.

787. mál
[17:04]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að ákaflega mikilvægt sé að við setjum okkur reglur um þunna eiginfjármögnun.

Mér skilst að í fortíðinni hafi verið gerðir samningar við stór iðnfyrirtæki, virkjanir, sem einmitt sömdu um að þau mundu ekki þurfa að hlíta neinum síðari tíma lögum um þunna eiginfjármögnun. Ég held að þau hafi haft vit á því að semja um að jafnvel þótt við samþykktum lög um þunna eiginfjármögnun gilti það ekki um þau. Þetta gildir þá aðeins um fyrirtæki héðan í frá sem hafa ekki samið um afslátt frá reglum.

Eins og ég skil þunna eiginfjármögnun gera menn það þannig að þeir eru með lágmarks eigið fé, skuldsetja fyrirtækin mjög mikið og taka hagnaðinn út í formi vaxta, af því að hann er undanþeginn. Hann er frádráttarbær frá skatti. Yfirleitt fara vextirnir inn í eitthvert aflandsríki eða jafnvel til Hollands og síðan þaðan til Delaware og enginn borgar skatt á neinum stað. Svona er verið að leika sér að því að taka hagnaðinn frá þeim stað þar sem virðisaukinn verður raunverulega til og færa hann yfir í lögsögu þar sem skattar eru afskaplega lágir og menn hirða einhvers konar gjöld af skúffufyrirtækjum. Það er ekkert annað verið að gera með þessu en að grafa undan velferðarsamfélögunum, grafa undan því sem er mikilvægt.

Það er leiðinlegt að liður í þessu er að þegar við setjum upp múrana og segjum að við ætlum að setja strangar reglur um eigið fé, að það þurfi að vera ákveðið mikið, þá fara fyrirtækin bara eitthvað annað og þangað sem, hvað á ég að segja, slíkar reglur eru sem veikastar.

Ég tel engu að síður að við eigum að leiða með góðu fordæmi og einbeita okkur að því að byggja upp fyrirtæki sem búa til verðmæti og eru tilbúin að taka þátt í að byggja upp samfélagið hér og velferðina.