145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.

787. mál
[17:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst aðeins varðandi lengd samningsins. Það er sérstakt ákvæði í lögunum sem segir: Þrátt fyrir að ákvæði í lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi heimili frávik í 13 ár frá undirritun samnings en aldrei lengur en í 10 ár frá því að skattskylda eða gjaldskylda myndast er heimilt að láta samning við félagið gilda í 14 ár en aldrei lengur en í 10 ár frá því að skattskylda myndast. Þannig að það var nú gerð sérstök lagagrein til að hafa þetta eins rúmt og mögulegt var.

En aðalatriðið er þetta. Hér í umræðunni fara menn inn á þá braut að segja: Við verðum að stöðva fyrirtæki í því að reyna að lágmarka skattgreiðslur sínar jafnvel þótt með lögmætum hætti sé vegna þess að það er afsiðvæðing alþjóðlegra viðskipta. En þessir samningar eru dæmi um nákvæmlega hið sama jafnvel þótt tímabundnir séu. Nákvæmlega hið sama. Þegar við tökum milljarða úr vösum skattgreiðenda til að undirbúa komu slíkra fyrirtækja erum við að gera nákvæmlega hið sama. Sama gildir um aðra fjárfestingarsamninga sem nefndir voru hér en þar fyrir utan höfum við undanfarin ár haft fyrirkomulag, sem reyndar hefur þurft að framlengja, um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.

Ég er bara að halda þessu til haga þannig að menn gangist við því að við Íslendingar nýtum okkur ívilnanir, skattafslætti, undanþágur frá tryggingagjaldi, undanþágur frá stimpilgjaldi, afslætti af fasteignasköttum og alla flóruna af hlutum þegar við viljum ná markmiðum okkar. Jafnvel þótt það sé í góðum tilgangi, til að efla nýsköpun og annað þess háttar, þá (Forseti hringir.) erum við á endanum fyrst og fremst að hugsa um íslenska heildarhagsmuni. Þessi fyrirtæki verða þá ekki byggð í jaðarbyggðum í öðrum löndum á meðan.