145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

lögreglulög og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

742. mál
[18:04]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði með þessu góða máli og þykir rétt, þar sem við píratar tölum oft um mikilvægi þess að hafa eftirlit með lögreglu, að minna á að það er mikilvægt að búa vel um lögregluna og að búa þannig um að lögreglumenn upplifi sig í þakklátu starfi eftir því sem mögulegt er. Auðvitað er það þannig að aðstæður leyfa það ekki alltaf. En ég fagna frumvarpinu og býst við og vona að það muni hafa mjög jákvæð áhrif á lögreglustörf og í beinu framhaldi réttindi borgaranna.