um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil að það komi hér aftur fram undir liðnum um fundarstjórn forseta að ég var ekki spennt fyrir því að taka þingsályktunartillögu mína um rannsókn á einkavæðingu bankanna til umræðu í þinginu á morgun eins og talað var um vegna þess að hún fékkst ekki rædd með þessari tillögu í kvöld sem var tekin fram fyrir aðra dagskrárliði.
Ég ítreka hins vegar við forseta að ég hef hugsað málið og ætla að þiggja boðið um að rannsóknin á einkavæðingu bankanna, hinni síðari, verði á dagskrá þingsins á morgun og mun ég hafa frekari framsögu á þeim grunni og fyrir þeirri tillögu þegar málið kemur á dagskrá.