145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

brunavarnir.

669. mál
[21:23]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Birgir Ármannsson) (S):

Hæstv. forseti. Umhverfis- og samgöngunefnd hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn gesti og fengið athugasemdir frá bæði Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu.

Í nefndarálitinu er fjallað nokkuð um aðdraganda málsins og forsögu. Hér er verið að leggja grunninn að innleiðingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi búnað og verndarkerfi sem ætlað er til notkunar í hugsanlega sprengifimu lofti. Eldri tilskipun var innleidd með reglugerð á grundvelli laga um Rafmagnseftirlit ríkisins en réttara þykir nú að tilskipunin verði innleidd á grundvelli laga um brunavarnir. Í nefndarálitinu segir að í tilskipuninni séu skilgreindar grunnkröfur sem vara skal uppfylla eftir því hversu mikil sprengihætta er í aðstæðum. Gert ráð fyrir að Mannvirkjastofnun annist eftirlit með framkvæmd laganna og skoðanir á grundvelli þeirra en geti falið faggiltri skoðunarstofu það verkefni. Ráð er fyrir því gert að ráðherra setji í reglugerð nánari ákvæði um það hvaða vörur falla undir þær kröfur sem gerðar eru um brunaöryggi í frumvarpinu.

Athugasemdir Samtaka verslunar og þjónustu varða stöðu faggildingar í landinu. Umhverfis- og samgöngunefnd getur þess í nefndaráliti sínu að henni hafi áður borist samsvarandi athugasemdir frá samtökunum og tekur undir með þeim um að víða virðist pottur brotinn í málaflokknum þar sem íslensk faggildingaryfirvöld hafa ekki farið í gegnum svokallað jafningjamat eins og gert er ráð fyrir í Evrópureglum.

Í sem stystu máli tekur umhverfis- og samgöngunefnd undir þær athugasemdir því að þetta vandamál hefur skapað innlendum aðilum kostnað og fyrirhöfn þar sem þeir hafa þurft að leita til aðila í útlöndum varðandi faggildingu.

Nefndin áréttar að mikilvægt sé að koma málefnum faggildingar hér á landi í gott horf og að veita þurfi fjármuni til þess.

Nefndin leggur aðeins til eina breytingu sem varðar gildistöku og kemur fram í nefndarálitinu.

Undir nefndarálit þetta rita auk þess sem hér stendur Höskuldur Þórhallsson, Katrín Júlíusdóttir, Haraldur Einarsson, Elín Hirst, Svandís Svavarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.