öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.
Hæstv. forseti. Hér er um að ræða mál sem umhverfis- og samgöngunefnd hefur haft til meðferðar og varðar öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga. Í nefndarálitinu er getið um gestakomur til nefndarinnar vegna þessa máls og umsagnir sem nefndinni bárust frá Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu og Sigurði Stefáni Ólafssyni.
Frumvarpið er flutt til þess að undirbúa innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um samræmingu laga aðildarríkjanna um markaðssetningu raffanga sem notuð eru innan ákveðinna spennumarka og er þar fjallað um grunnkröfur sem gerðar eru til raffanga annars vegar og kröfur um fullnægjandi rafsegulsamhæfi vara sem falla undir tilskipanirnar hins vegar. Þessar tilskipanir koma í stað eldri tilskipana sem hafa verið innleiddar í íslensk lög með reglugerðum á grundvelli laga um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga. Tilskipanirnar fela í sér markaðseftirlit sem Mannvirkjastofnun mun sinna en getur einnig falið faggiltri prófunarstofu að prófa vörur og meta hvort þær uppfylli ákvæði laganna.
Þess er sérstaklega getið í nefndarálitinu að í frumvarpinu er fjallað um að kveðið verði skýrt á um það í lögum að bannað sé að leggja háspennulínur í lofti yfir íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, aðrar byggingar og íþrótta- og útivistarsvæði. Jafnframt er kveðið á um bann við að reisa slíkar byggingar undir háspennulínum. Hingað til hefur verið óheimilt að reisa byggingar undir slíkum línum þar sem umhverfis þær er ákveðið helgunarsvæði. Bannið hefur hins vegar ekki verið mjög skýrt þar sem það hefur að vissu leyti verið falið innan um tæknileg ákvæði staðla. Með tilliti til réttaröryggis og öryggis borgaranna verður að telja rétt að kveðið sé skýrt á um bannið í lögum.
Nefndinni bárust í þessu máli athugasemdir Samtaka verslunar og þjónustu varðandi stöðu faggildingarmála hér á landi. Tekur nefndin undir athugasemdirnar og vísar til umfjöllunar í áliti nefndarinnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um brunavarnir.
Í þessu máli er gerð sambærileg tillaga um gildistöku og í fyrra málinu sem ég gerði grein fyrir áðan.
Höskuldur Þórhallsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis. Ásta Guðrún Helgadóttir og Róbert Marshall voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið rita auk þess sem hér stendur Höskuldur Þórhallsson, Katrín Júlíusdóttir, Haraldur Einarsson, Elín Hirst, Svandís Svavarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.