145. löggjafarþing — 122. fundur,  31. maí 2016.

ný skógræktarstofnun.

672. mál
[21:49]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni, hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni, fyrir hans svör. Ég get tekið heils hugar undir það að það er eðlilegt að reynsla af framkvæmd samráðsins verði metin við heildarendurskoðun laga um skógrækt. En ég vil þá spyrja hvort fram hafi komið, við vinnu nefndarinnar, hvenær Alþingi megi eiga von á frumvarpi um heildarendurskoðun laganna. Eins mikilvægt og það er að þetta frumvarp sem hér er komið fram geti leitt til farsællar sameiningar og þróunar skógræktar á næstu árum þá er afskaplega mikilvægt að heildarendurskoðun fari fram til þess að þróun náttúruverndar og sjálfbærrar landnýtingar haldi áfram þar sem áhersla verði á samhæfingu markmiða laga um skógrækt, landgræðslu og náttúruvernd.