tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda.
Frú forseti. Mér fannst ég greina það á hæstv. ráðherra að hann væri ekki léttur í lundu í ræðu sinni, þekki ég nú hæstv. ráðherra ágætlega, en ég held þó að ekki þurfi að koma honum á óvart að hv. þingmenn hafi ýmsar spurningar fram að færa um þetta mál, í fyrsta lagi í ljósi þess að samkomulagið sem hæstv. ráðherra vísaði í er gert um miðjan apríl 2016. Það hefði væntanlega verið hægur vandi fyrir hæstv. ráðherra að koma með þetta mál fyrr inn í þingið, hann getur kannski útskýrt fyrir okkur hvað hefur tafist í þeim efnum, og eiga samtöl við þingmenn sem hann veit að hafa mikinn áhuga á málinu. Hæstv. ráðherra vitnaði til þess að hægt væri að biðja um sérstakar umræður. Það hefur verið gert á kjörtímabilinu a.m.k. einu sinni af þeirri sem hér stendur. Ég held að hæstv. ráðherra hefði gert vel í því að fylgja þessu máli úr hlaði þó að það varði ekki efni frumvarpsins sjálfs, sem er alveg hárrétt hjá hæstv. ráðherra að byggir á gömlu samkomulagi og snýst um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það hefði verið gott að fá skýrslu um þetta samkomulag.
Þegar hæstv. ráðherra segir að hann þurfi engar lagabreytingar til að stofna nýjan framhaldsskóla þá er það alveg rétt, en við sem höfum fylgst með fréttum og höfum lesið um þetta nýja samkomulag sem hæstv. ráðherra hefur gert sjáum að þar er beinlínis sagt að stefnt sé að nýju frumvarpi um tónlistarmenntun á vorþingi 2016. Er þá nema von að hv. þingmenn spyrji hæstv. ráðherra: Hvar er það þá? Eigum við von á því í ljósi þess að það stendur í samkomulaginu sem hæstv. ráðherra gaf í skyn að væri búið að vanda sérstaklega til? Mér fannst hann gefa til kynna að ekki hefði verið nægjanlega vel staðið að undirbúningi samkomulagsins 2011. Ég leyfi mér að fullyrða, enda kom ég að því máli, að gríðarlega vinna var lögð í það samkomulag. Ég held að ekki sé hægt að vísa eingöngu til undirbúnings um það (Forseti hringir.) og hvernig það mál, ég er sammála hæstv. ráðherra, var svo meðhöndlað af tilteknum sveitarfélögum. Við erum algjörlega sammála um það. (Forseti hringir.) En er nema von að hv. þingmenn spyrji: Hvar er (Forseti hringir.) lagafrumvarpið sem hæstv. ráðherra er búinn að segja í samkomulagi (Forseti hringir.) að eigi að koma inn á þetta þing?