störf þingsins.
Herra forseti. Ég get að mörgu leyti tekið undir orð síðasta ræðumanns, ég hef ekki haft gaman af því að fylgjast með umfjöllun um þetta mál undanfarna daga.
Ég ætlaði að vekja athygli á öðru og kannski tvennu. Í fyrra lagi, herra forseti, hvað þingstörfin ganga hér vel og málefnalega fram. Að mínu mati er augljóst hver meginskýring þessa er, að landið er núna svo heppið að hafa málefnalega og sanngjarna stjórnarandstöðu sem lætur góð mál njóta sín og fá hér eðlilegan framgang en leggur ekki stein í götu þeirra af meinbægni í garð sitjandi ríkisstjórnar, eins og stanslaust var gert á síðasta kjörtímabili. Við nálgumst nú kosningar og einhverjir geta borið saman í huganum hvernig núverandi stjórnarandstaða stendur málefnalega að málum og hefur lagt mikla vinnu í að lagfæra mörg frumvörp frá hæstv. ríkisstjórn og borið það saman við það hvernig Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, sérstaklega á síðari hluta síðasta kjörtímabils, unnu skipulagt eyðileggingarstarf til þess að reyna að klekkja á þáverandi ríkisstjórn sem var að reyna að stjórna landinu við erfiðar aðstæður.
Hitt sem ég ætlaði að nefna eru þær ánægjulegu fréttir sem komu í fjölmiðlum um að hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ferðamálaráðherra, hafi nú ráðist í það stórvirki að láta telja klósett við hringveginn. Hvað á að gera með þá talningu veit hins vegar enginn maður, enda hefur aldrei neitt komið úr neinu sem sá hæstv. ráðherra hefur reynt að gera á sviði ferðamála. Ég nefni þetta undir liðnum um störf þingsins vegna þess að fyrir liggur tillaga um það hvernig taka skuli á þessum málum. Hún er flutt af nokkrum þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og leggjum við til að Vegagerðinni verði falið þarna ábyrgðarhlutverk og nýtt verði sú aðstaða sem Vegagerðin hefur á áningarstöðum úti um allt land til þess að leysa úr brýnasta vandanum í þeim efnum. Það er ömurlegt til þess að vita hvernig ástandið er og þarna væri skjótvirk leið til þess a.m.k. að bæta verulega úr því og setja það í hendur langöflugasta aðilans sem til staðar er í landinu til að taka þetta verkefni að sér, þ.e. Vegagerðarinnar.
Tengd mál
- Uppbygging áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi, 150. mál, þingsályktunartillaga.