búvörusamningur með tilliti til umhverfis- og náttúruverndar.
Virðulegi forseti. Svo ég víki fyrst að því sem ég náði ekki að svara fer Matvælastofnun með framkvæmd reglugerðar um landbætur. Það voru 50 áætlanir sem þurfti að uppfæra fyrir 1. mars, 25 fyrir afrétti og 25 fyrir upprekstrarheimalönd og heimalönd. Landgræðslan getur áritað landbótaáætlanir hafi þær verið unnar í samráði við stofnunina. Hún sendi 40 áritaðar en 10 bárust óáritaðar og Landgræðslan hefur frest núna til 15. júní til að vinna umsagnir fyrir þær tvær áætlanir sem eftir eru. Varðandi spurninguna um hvort einhverjir hafi fengið einhverja vottun getur Matvælastofnun ekki að svo stöddu veitt svör við þeirri spurningu þar sem þessar landbótaáætlanir eru enn í umsagnarferli og menn hafa tíma til 15. júní.
Ég verð að segja eins og er að ég er að mörgu leyti mjög ósammála mörgum fullyrðingum einstakra þingmanna um þessa samninga og tel að við nánari skoðun á þeim muni menn sjá hversu vel er tekið á ýmsum þáttum sem hér hefur verið varpað upp, þáttum sem menn hafa haft áhyggjur af. Þessar breytingar eru þær langstærstu og mestu í áratugi í búvörusamningum og byggja ekki síst á sjálfbærri nýtingu lands. Það er líka staðreynd að á síðustu rúmum þremur áratugum hefur sauðfé fækkað um 40% með tilheyrandi minnkun á beitarálagi. Bestu vörslumenn landsins, bestu landgræðslumennirnir, eru bændur landsins, ekki síst sauðfjárbændur. Þannig hafa menn vegna landbótaáætlana, gæðastýringarinnar sem vex núna úr væginu 35% í stuðningnum yfir í 56% í þessum samningi, verndað um 300.000 hektara. Í samvinnuverkefninu Bændur græða landið eru 640 bændur og eins og fram hefur komið hér hafa um 35.000 hektarar verið ræktaðir upp.
Við tökum á móti sífellt fleiri ferðamönnum (Forseti hringir.) sem munu vilja nýta matinn sem við framleiðum hér. Eitt besta verkefnið til að koma í veg fyrir aukið kolefnisspor matvælaframleiðslu er að framleiða vöruna þar sem hennar er neytt.