145. löggjafarþing — 123. fundur,  1. júní 2016.

heimild til útboðs vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju.

763. mál
[20:56]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Það verður seint sagt að þetta sé það mál á þingi sem ég hef mestan og bestan skilning á þótt ég sé aðeins farin að átta mig á hvað orð eins og frátafir og djúprista og skrokklag og þess háttar þýða. Þetta er verulega flókið mál og sitt sýnist hverjum, en ég er fylgjandi því að farið verði í smíði á nýjum Herjólfi því að það er löngu tímabært. Við höfum fundað og fengið gesti vegna þessa máls og það hafa verið upp ýmsar hugmyndir eins og um að leigja ferju. Þeir segja mér sem betur þekkja til að það hafi verið reynt en ekki gengið. Þetta mun vissulega taka tíma og það hefði alveg örugglega verið betra ef við hefðum verið fyrr á ferðinni með þetta því að Vestmannaeyjar og íbúar líða fyrir það á meðan ekkert gerist. Ég ætla ekki að þykjast vera neinn sérfræðingur í þessu. Ég treysti á þá sem hafa komið fyrir nefndina og talað fyrir þessu máli. Það sem ég vil þó viðra hérna eru áhyggjur mínar af fjármögnun, hvernig hún eigi að vera, því að ekki er þetta í samgönguáætlun. Það hlýtur þá að vera þannig í fjárlögum fyrir 2017 að gert sé ráð fyrir þeim kostnaði sem fellur til á næsta ári á einhvern hátt. En það þarf auðvitað að bjóða þetta út og þetta er ferli, þess vegna þarf að byrja á því fyrr en síðar.

Ég er ekki á nefndarálitinu. Það er einfaldlega vegna þess að ég komst ekki á fundinn, aldrei þessu vant. Ég er alls ekki mótfallin málinu, þá hefði ég verið með eigið nefndarálit. Ég kem því í rauninni upp til að styðja það að þetta mál haldi áfram og verði samþykkt.