145. löggjafarþing — 123. fundur,  1. júní 2016.

grunnskólar.

675. mál
[22:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum. Markmið frumvarpsins er að skerpa á lagaumgjörð sjálfstætt starfandi grunnskóla og skýra ramma um starfsemi þeirra hvað varðar fjármál og réttindi þeirra sem njóta þjónustunnar, sem og að auka skýrleika löggjafar um starfsemi svonefndra frístundaheimila fyrir börn í yngri árgöngum grunnskóla. Þá hefur frumvarpið að geyma tillögur um breytingar á reglum grunnskólalaga um stjórnsýslukærur og um samvinnu sveitarfélaga um grunnskólahald.

Það sem kemur helst fram í þessu um frístundaheimilin er að meiri hlutinn telur óraunhæft að lögfesta skýlausa skyldu sveitarfélaga til að bjóða í öllum tilvikum upp á aðgengi að frístundaheimilum, en telur engu að síður nauðsynlegt vegna útbreiðslu slíkra heimila að til sé lagaumgjörð um starfsemina. Hann leggur líka áherslu á að gerð verði svokölluð viðmið um gæði frístundastarfsins og að við gerð þeirra verði ríkt tillit tekið til sjónarmiða sveitarfélaganna og svigrúm gefið fyrir mismunandi sveitarfélög til að haga starfi frístundaheimila í samræmi við staðbundnar aðstæður og áherslur.

Líka vil ég geta þess að varðandi sjálfstætt rekna grunnskóla er ekki ætlað með frumvarpi þessu að breyta gildandi rétti í grundvallaratriðum, heldur að skerpa á lagaumgjörð um sjálfstætt starfandi skóla.

Guðmundur Steingrímsson skrifar undir þetta nefndarálit með fyrirvara. Hann telur að jafnt aðgengi að námi óháð efnahag sé lykilatriði í íslensku menntakerfi. Það sé hans skilningur að með frumvarpi þessu sé ekki greidd gata fyrir sjálfstæða skólastarfsemi með háum skólagjöldum sem aðeins standi börnum efnameiri foreldra til boða, heldur færi það aðeins í lög gildandi rétt. Á þeim forsendum styður hann frumvarpið. Helgi Hrafn Gunnarsson ritar undir álitið með fyrirvara um heildarsamhengi frumvarpsins, auk þess sem hann telur að sú hlutfallstala sem fjárframlag úr sveitarsjóði til sjálfstætt rekinna grunnskóla miða við eigi að vera 90% í stað 75% eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Að öðru leyti rita undir málið Unnur Brá Konráðsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Haraldur Einarsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Ég þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir starf sitt við vinnu þessa máls.