145. löggjafarþing — 124. fundur,  2. júní 2016.

fullgilding Parísarsáttmálans.

[10:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég geri fastlega ráð fyrir því að það verði mjög góð samvinna við þingið. Þetta er mikilvægt mál eins og hv. þingmaður bendir á. Það er mikið kappsmál fyrir okkur að klára þetta sem fyrst og senda skýr skilaboð um hvar við stöndum í þessum málaflokki. Við horfum líka að sjálfsögðu til þess sem Norðmenn gera.