fjöldi kvenna í löggæslu og utanríkisþjónustu.
Virðulegi forseti. Ég hef lýst þessari skoðun minni í þessum stól og mun koma þeirri skoðun á framfæri við ríkislögreglustjóra að þetta sé í samræmi við þá mynd sem hv. þingmaður nefndi og var á síðum blaðanna nýlega um íþróttafréttamenn. Mér finnst við stundum vera að tala um hluti sem mér finnst að eigi að vera svo gjörsamlega sjálfsagðir að við ættum ekki að þurfa að standa hér og tala um þá. Það er eiginlega það sem mér finnst vitlausast við þetta allt saman, að ég standi hér og veki athygli á því að hlutirnir ættu kannski að vera með öðrum hætti, svo inngreypt er það a.m.k. í mína eigin sál að það er algjörlega óskiljanlegt að við þurfum að ræða þetta.