almennar félagsíbúðir.
Hæstv. forseti. Með samþykkt þessa frumvarps erum við að leggja grunn að nýju leiguíbúðakerfi á Íslandi, kerfi sem við höfum ekki átt sambærilegt síðan verkamannabústaðakerfið var því miður lagt niður í lok síðustu aldar. Það er mat okkar í Samfylkingunni að þetta sé gríðarlega mikilvægt mál þó að það þurfi meiri fjármuni inn í það til að byggja fleiri íbúðir en við fögnum því að það sé að verða að lögum og þeirri samstöðu sem náðist um það sem mun vonandi stuðla að því að kerfið fái að vaxa og dafna.