145. löggjafarþing — 124. fundur,  2. júní 2016.

heimild til útboðs vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju.

763. mál
[11:29]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég styð að sjálfsögðu þetta mál. Það er mikill gleðidagur í dag, að við séum komin á þennan stað. Við sem höfum staðið að undirbúningi gerðar Landeyjahafnar með öllu því sem tilheyrir, þar á meðal smíði nýrrar ferju frá upphafi, erum að sjálfsögðu glöð að sjá þennan áfanga komast í hús. Þetta verður mikil samgöngubót fyrir Eyjamenn sem og alla Íslendinga og mun gefast vel fyrir alla þá fjölmörgu ferðamenn sem að sjálfsögðu munu leggja leið sína til Eyja. Til hamingju með daginn í dag.