145. löggjafarþing — 124. fundur,  2. júní 2016.

skattar og gjöld.

667. mál
[11:40]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessari breytingu og lækkun tryggingagjalds, þó kannski fyrr hefði verið, ég get alveg tekið undir það. Einnig fagna ég breytingartillögu frá nefndinni varðandi samsköttunina. Ég leyfi mér kannski ekki að fullyrða það en mig grunar sterkt að ef við reynum að flokka þetta eftir stéttum komi þetta einna helst sjómönnum til góða. Ég fagna því eftir þau skilaboð sem við fengum úr þessum sal þegar sjómannaafslátturinn var afnuminn, þetta sé þó skref í rétta átt og þeirra hagur sé réttur að hluta til.