skattar og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég, talsmaður frelsisins, fagna því að sjá þingheim samþykkja hér að tollfrjálsum verslunum sé gert það skýrara að þær megi selja áfengi, þar á meðal einkaaðilum, svo framarlega sem verslunin er tollfrjáls. En þannig er nefndarálitið úr garði gert og verið að tryggja það hér og því fagna ég. Hins vegar finnst mér samkvæmt lögskýringu — ég set þann skilning í þetta mál — að við séum aðeins að leyfa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins að selja áfengi í Fríhöfninni þar sem það er skýrt í áfengislögunum. En mig langar líka að bæta því við í lokin að mér finnst svolítið fyndið að það sé ekkert mál að breyta þessu fyrst þetta snertir ríkið bara sisvona án umræðna.