145. löggjafarþing — 124. fundur,  2. júní 2016.

fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti.

668. mál
[12:43]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Það er með mikilli ánægju sem ég greiði atkvæði með þessu mikilvæga frumvarpi. Ég tek heils hugar undir orð síðasta hv. ræðumanns. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref fyrir nýsköpun í landinu sem sjaldan eða aldrei hefur verið jafn gróskumikil og einmitt nú þannig að ég fagna þessu og óska okkur öllum til hamingju með þær breytingar sem við erum að gera hér.