145. löggjafarþing — 124. fundur,  2. júní 2016.

húsnæðisbætur.

407. mál
[13:17]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Eins og þegar hefur fram komið skrifa ég undir nefndarálit þetta með fyrirvara. Ég mun nú gera aðeins grein fyrir honum, hann er sumpart almenns eðlis, en snýr að öðru leyti að einstökum efnisatriðum.

Í fyrsta lagi má segja að vinnu velferðarnefndar voru settar nokkuð þröngar skorður við þetta mál sökum mikils annríkis við önnur gríðarlega stór mál sem nefndin hefur haft til umfjöllunar og hafa tekið mikið af tíma hennar í mestallan vetur. Framan af var það löggjöf um húsnæðissamvinnufélög og síðan undir lokin og í rauninni alveg frá því fljótlega upp úr áramótunum vinna við frumvarp um almennar íbúðir, nýtt fyrirkomulag félagslegs leiguíbúðakerfis í landinu sem við vorum að lögtaka hér rétt fyrir hádegið.

Þetta leiddi til þess að á alllöngum köflum hafði nefndin ekki tíma eða aðstöðu til að sinna þessu máli mikið og afgreiðsla þess í lokin fór því fram á fremur skömmum tíma. Engu að síður voru gerðar breytingar sem ég mun styðja. Eðli málsins samkvæmt og í samræmi við það sem fram hefur komið var lítill tími til að skoða nákvæmlega hvernig það kemur út að gera þær breytingar á stuðlum, grunnfjárhæðum og frítekjumörkum sem engu að síður er niðurstaðan að leggja til og framsögumaður fór aðeins yfir hvaða meginsjónarmið voru þar að baki sem ég deili með öðrum félögum mínum í velferðarnefnd. Ég hef þó þann fyrirvara á að ég hef haft minni tíma en ég gjarnan hefði viljað hafa til að leggjast yfir það hvort þarna séum við að ná bestu mögulegri nálgun í samræmi við þau markmið sem við settum okkur.

Ágallar frumvarpsins eins og þar komu fram voru nokkrir og sá stærstur og alvarlegastur að ekki lá ljóst fyrir hver ætti að annast um framkvæmd greiðslu húsnæðisbóta. Það vakti nokkra athygli að frumvarpið kom þannig fram að félagsmálaráðherra átti með reglugerð að velja bara einhvern framkvæmdaraðila. Þetta lagðist ekki vel í marga og þar á meðal benti til dæmis Persónuvernd á að ekki væri heppilegt að svo ríkum heimildum til upplýsingaöflunar og eftirlits sem frumvarpið gerir ráð fyrir að framkvæmdaraðilinn hafi væri bara vísað áfram í raun og veru með reglugerðarákvörðun til einhvers og einhvers. Strax væri þó til bóta ef menn byggju út slíkar ítarlegar heimildir til upplýsingaöflunar að það lægi ljóst fyrir hvaða lögformlegi aðili fengi þær. Með þetta var því nokkur vandræðagangur og um tíma upplýsti ráðuneytið að það hefði í huga að Tryggingastofnun annaðist framkvæmdina. Tryggingastofnun hófst handa við að undirbúa sig undir að taka við verkefninu, en síðan snerist ráðherra eða ráðuneytinu hugur og böndin bárust að Vinnumálastofnun. Það er núna það sem í bígerð er og í raun og veru meira en það, því að það kemur þá loksins inn í lögin hver framkvæmdaraðilinn er samanber breytingartillögur velferðarnefndar. Fyrir þeirri niðurstöðu eru ugglaust rök. Ég hef heyrt þau, svo sem eins og að Vinnumálastofnun hafi reynslu af framkvæmd við mánaðarlegar greiðslur. Margir fleiri aðilar í landinu hafa reynslu af því að greiða eitthvað út mánaðarlega, en í þessu tilviki væri það þá fæðingar- og foreldraorlof til dæmis, og svo auðvitað atvinnuleysisbætur. Stofnunin hefur vissulega samtímaaðgang að upplýsingum úr staðgreiðslugrunni ríkisskattstjóra sem er mikill kostur. Þann aðgang hefur reyndar Reykjavíkurborg eitt sveitarfélaga í dag og nýtir sér við greiðslu húsaleigubóta í núverandi fyrirkomulagi. Eftir standa efasemdir mínar um að þetta sé endilega besta niðurstaðan til framtíðar litið, frú forseti, með fullri virðingu fyrir Vinnumálastofnun, að vista verkefnið þarna. Það er ein af ástæðum þess að ég kýs að vera með fyrirvara um málið.

Ég hef talið og er ekki einn um það, fjölmargir umsagnaraðilar og gestir sem komu fyrir nefndina deildu því sjónarmiði, að álitlegast væri að verkefnið væri hjá ríkisskattstjóra saman með greiðslu vaxtabóta. Ríkisskattstjóraembættið er öflugt og vel tölvum og tækjum búið og hefur sýnt að það ræður við stór og viðamikil verkefni, jafnvel sérstök verkefni. Ég hefði engar einustu áhyggjur af því þótt þessar greiðslur væru mánaðarlegar, ýmislegt af greiðslum hjá ríkisskattstjóra er ekki mánaðarlegt heldur ársfjórðungslegt og álagning og annað og uppgjör einu sinni á ári, að verkefnið mundi ekki leysast vel þar á þeim bæ.

Kosturinn sem ég sæi líka væri sá að þar með væru komnar á eina hönd, á einn stað, greiðslur bæði vaxtabóta og húsnæðisbóta. Til framtíðar litið væri það æskilegt af því að, og það er í öðru lagi ástæða fyrir fyrirvara af minni hálfu, því miður erum við ekki að ná alla leið þangað sem ætlunin var með þessari vinnu sem á sér margra ára forsögu og í tíð tveggja ríkisstjórna að minnsta kosti, hefur verið unnið að því og stefnt að því að taka upp einhvers konar eitt samræmt kerfi húsnæðisstuðnings við tekjulágar fjölskyldur. Mikilvægt er að menn missi ekki sjónar á því markmiði.

Menn geta með góðum vilja sagt að hér sé að einhverju leyti skref í þá átt með kerfisbreytingunni yfir í húsnæðisbætur úr húsaleigubótum. Það má kannski segja að sú einföldun sé að nást fram að hinn almenni stuðningur, húsnæðisbæturnar, verður þá á einni hendi hjá ríkinu, en í dag er þetta samstarfsverkefni, húsaleigubætur sem sveitarfélögin annast um greiðslur á að eru hluta til kostaðar af ríkinu og meira að segja sérstakar húsaleigubætur líka en nú verður dregið í sundur þar. En niðurstaðan er engu að síður sú að þrír aðilar hafa með höndum framkvæmd á húsnæðisstuðningi við tekjulægra fólk. Það eru sveitarfélögin með sérstakan húsnæðisstuðning, það verður Vinnumálastofnun með greiðslu húsnæðisbóta og ríkisskattstjóri með greiðslu vaxtabóta. Þetta er ekki það framtíðarlandslag í þessum efnum sem ég hefði viljað sjá.

Í öðru lagi hef ég þegar gert lítillega grein fyrir þeim fyrirvara sem ég hef á um útfærslu útreiknings húsnæðisbóta eins og hún er lögð til og nú með breytingartillögu velferðarnefndar sem ég þó stend að hvað varðar breytta framsetningu á stuðlum, grunnfjárhæðum húsnæðisbóta og frítekjumörkum. Það vakti auðvitað strax athygli þegar frumvarpið kom fram og töflur sem því fylgdu að tilteknir hópar sem notið hafa hvað ríkulegast stuðnings í húsaleigubótakerfinu fengu í raun og veru ekki neitt að ráði út úr kerfisbreytingunni og þeim auknu fjármunum sem til stendur að setja í stuðning við leigjendur í gegnum húsnæðisbætur. Þetta helgaðist einfaldlega af því að hinar útreikningslegu forsendur voru þannig lagðar upp að bæturnar mundu fara ofar í tekjustigann og minni séráhersla yrði á tekjulægstu fjölskyldurnar, t.d. einstæða foreldra með börn o.s.frv.

Niðurstaða velferðarnefndar sem var unnin af ráðuneytinu að ósk nefndarinnar og í samstarfi er sú að fara þarna aðeins meira bil beggja. Útkoman verður því hagstæðari en frumvarpið sjálft gerði ráð fyrir fyrir einmitt þá hópa sem sérstaklega ríkulegs stuðnings eða meiri stuðnings hafa notið, það er nú víst ekki rétt orðalag, frú forseti, ég biðst afsökunar á því að tala um einhvern sérstaklega ríkulegan eða rausnarlegan stuðning við leigjendur á Íslandi, það hefur ekki verið, en þó er það þannig að reynt hefur verið að standa sérstaklega við bakið á einstæðum foreldrum með börn í núverandi kerfi og tekjulægri barnafjölskyldunum. Þær koma heldur betur út úr þessum útreikningslegu forsendum en þeim sem frumvarpið lagði upp með.

En ég endurtek að ég hef haft afar lítinn tíma til að leggjast yfir þetta, hefði gjarnan viljað það. Mér er alltaf fremur illa við að bera fyrirvaralaust ábyrgð á niðurstöðu af málum af þessu tagi því að reynslan hefur auðvitað kennt manni að þetta getur verið ákaflega viðkvæmt og stundum sjá menn ekki alveg fyrir það sem getur orðið útkoman þegar menn á skömmum tíma breyta grundvelli útreikninga af þessu tagi. Þetta eru alveg gríðarlega mikilvæg mál, því að þessi stuðningur er tekjulágum fjölskyldum þrátt fyrir allt mjög dýrmætur. Það má ekkert misfarast í þeim efnum, þannig að ég áskil mér rétt til þess að fylgjast með því hvernig þetta kemur út og bregðast þá við eftir atvikum eftir því sem ég verð í færum til.

Í þriðja lagi var það mikill ágalli á málinu eins og það kom frá ríkisstjórn og það gagnrýndi ég við 1. umr. og í nefndinni að áfram var gert ráð fyrir að sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaganna við þá sem erfiðast eiga í þeim efnum innan þeirra vébanda væri valkvæður, þ.e. sveitarfélögunum átti áfram að vera það í sjálfsvald sett hvort sá viðbótarhúsnæðisstuðningur, sem oft hefur verið álag á greiddar húsaleigubætur þar sem sérstaklega erfiðar félagslegar eða afkomulegar aðstæður gera það nauðsynlegt, yrði áfram valkvæður. Þetta gat ég ákaflega illa sætt mig við af því að vonir manna höfðu staðið til þess að við værum að ná utan um þetta kerfi, gera það heildstætt og gera alla landsmenn jafnsetta gagnvart því óháð því í hvaða sveitarfélögum þeir byggju.

Sömuleiðis var það auðvitað alltaf von manna þegar lagt var af stað í leiðangurinn um að taka upp eitt samræmt stuðningskerfi, húsnæðisstuðningskerfi eða húsnæðisöflunarstuðningskerfi fyrir landsmenn óháð því hvort þeir kysu eða þyrftu að leigja sitt húsnæði eða væru að reyna að eignast það, að um einhvers konar samræmdan stuðning yrði að ræða þannig að mönnum væri ekki mismunað í þeim efnum að breyttu breytanda, því að ekki er alveg hægt að leggja að jöfnu annars vegar húsaleigubætur eða húsnæðisbætur sem ganga til þess að mæta hluta af húsnæðiskostnaði tekjulágra fjölskyldna og hins vegar vaxtabætur sem þrátt fyrir allt eru aðstoð við fjölskyldurnar við að mynda smátt og smátt einhverja eign. Það má alveg réttlæta að horft sé til þess, en markmiðið á samt sem áður að vera, tel ég, að yfir líftíma venjulegrar fjölskyldu sé hinn opinberi stuðningur sem jafnastur að þessu leyti þannig að ekki sé mismunun í því fólgin sérstaklega. Þetta kallar auðvitað á eitt samræmt fyrirkomulag húsnæðisstuðnings. En það er sem sagt ekki að nást og hefði verið enn fjær að tryggja mönnum meira jafnrétti í þessum efnum ef sveitarfélögin hefðu áfram getað haft það valkvætt hjá sér hvort þau væru með sérstakan húsnæðisstuðning.

Þess vegna fagna ég því sérstaklega að loksins náðist samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga og nánari útfærsla á verka- og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga hvað varðar fyrirkomulag húsnæðisstuðnings, að sveitarfélögin takast það nú á herðar sem skyldu að vera með sérstakan húsnæðisstuðning. Það er í samkomulaginu sem fylgir sem fylgiskjal með nefndaráliti þessu í 2. gr. Með leyfi forseta, segir þar einfaldlega:

„Ríkið skal annast framkvæmd almenns húsnæðisstuðnings við leigjendur samkvæmt lögum um húsnæðisbætur.

Sveitarfélög skulu annast framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum.“

Aftur er fjallað um sérstakan húsnæðisstuðning og þar segir í 4. gr.:

„Sveitarfélög skulu veita íbúum, sem á þurfa að halda, sérstakan húsnæðisstuðning til að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar í samræmi við nánari reglur sem sveitarstjórn setur.“

Þessa sér líka stað 7 í breytingartillögum velferðarnefndar, því að þar er í kafla sem breytir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga bætt við þremur nýjum málsgreinum svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Sveitarfélög skulu veita sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við nánari reglur sem sveitarstjórn setur.“

Með öðrum orðum, það verður frá og með lögfestingu þessa ekki valkvætt heldur skylda.

Þá var það einnig niðurstaða í þessum samskiptum að sveitarfélögin skulu sjá um að veita foreldrum eða forsjáraðilum 15–17 ára barna eða ungmenna sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum, þ.e. sem verða að sækja nám fjarri heimili sínu og þurfa þar af leiðandi að búa á námsgörðum eða heimavist, stuðning vegna húsnæðiskostnaðar. Þannig að þeir aðilar einnig fái þá í reynd tilteknar húsnæðisbætur, áður húsaleigubætur, vegna þess kostnaðar. Þetta er að sjálfsögðu mikilvægt mál. Ég er ekki að gagnrýna það fyrirkomulag í sjálfu sér að þessi hluti málsins sé á hendi sveitarfélaganna. Það er auðvitað að mörgu leyti nærtækt því að oftast er um ungmenni að ræða sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu en hafa vegna aðstæðna þurft að sækja nám utan heimabyggðar og mjög mikilvægt að þessu sé vel fyrir komið.

Nefndin vildi reyndar gjarnan skoða möguleika á að ganga lengra í þessum efnum og geta líka mætt húsnæðiskostnaði þeirra sem eru í þeim aðstæðum að þurfa að sækja nám utan heimabyggðar og eiga þess ekki kost að fara inn á heimavist eða námsgarða og þurfa þá að leigja sér húsnæði á markaði. Um það eru fjölmörg dæmi, það vitum við. En varað er við því að fara út í þá breytingu því að þá opnist mikið pandórubox og menn höfðu ekki kjark í sér til að skella sér alla leið í þeim efnum. Ég hafði ekki miklar áhyggjur af því þótt það hefði verið gert, einfaldlega vegna þess að hér er um tiltölulega fámennan hóp að ræða. Þetta eru aðallega nemendur úr afskekktari og dreifðari byggðum landsins sem í einhverjum mæli kjósa sér nám sem er þá þannig staðsett eða aðstæður eru þannig að þeir eiga ekki kost á vist á námsgörðum eða heimavist en þurfa til þess að geta stundað viðkomandi nám sem staðarnemar að leysa sín húsnæðismál, gætu frekar verið jafnvel tugir en hundruð á ári hverju. Mér finnst kerfið frekar aumt ef það ræður ekki við það að ná utan um það mál og loka því þannig að ekki sé nein hætta á að til dæmis undanþæg heimild til slíks væri misnotuð.

Þetta er engu að síður niðurstaðan. En ég vil halda þessu til haga því að á þetta var bent af gestum sem fyrir nefndina komu. Sveitarstjórar af Norðurlandi vestra lögðu til dæmis á borð nefndarinnar bein dæmi um það að nemendur úr sveitarfélögum þeirra væru í slíkri stöðu. Þetta hefði ég gjarnan viljað að tekist hefði að leysa en það næst ekki í þessari umferð.

Það er fagnaðarefni að þessu leyti að málið í heild sinni þroskaðist nokkuð á hinni löngu meðgöngu í þinginu. Það gerði það í og með vegna þess að ráðuneytið gat sjálft komist að niðurstöðu, svo sem um það hver ætti að framkvæma þetta. Það þroskaðist líka að því leyti til að þetta dugði greinilega til þess að gefa ríki og sveitarfélögunum þann tíma sem þurfti til að landa mikilvægu samkomulagi tengt þessu máli. Þar endurtek ég og fagna aftur alveg sérstaklega að nú verður það skylda sveitarfélaganna að veita sérstakan húsnæðisstuðning.

Ég tel því að velferðarnefnd hafi á knöppum tíma og við frekar þröngar aðstæður gert sitt besta til að lagfæra málið eins og nefndin gerir jafnan og hefur orðið hlutskipti hennar æ ofan í æ í vetur að taka við misvel undirbúnum frumvörpum og gera á þeim meiri eða minni grundvallarbreytingar til að þau yrðu betur afgreiðslutæk. Það hefur átt við um þetta mál að hluta til líka þó að breytingarnar séu kannski ekki eins viðamiklar hér og í sumum öðrum tilvikum, en þetta eru þó 22 tölusettar breytingartillögur á breytingartillöguskjali sem er á fjórðu síðu. Þannig að talsvert er það nú.

En það sem er ánægjulegt og ég hef farið yfir er að tíminn hefur að mörgu leyti síðan nýst til góðra hluta í tengslum við málið, hjá bæði ráðuneytinu og sveitarfélögunum, og það er vel þegar málin eru þó heldur að þróast í rétta átt. Þess vegna er í ég í sjálfu sér ágætlega sáttur við niðurstöðuna og stend fyllilega á bak við hana. Af ástæðum sem ég hef nokkuð rækilega útskýrt setti ég þó fyrirvara á um málið.