145. löggjafarþing — 125. fundur,  2. júní 2016.

tekjuskattur.

735. mál
[18:57]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur fyrir svarið. Ég tek undir það að þetta mál snýst í grundvallaratriðum um jafnræði í skattlagningu og að ekki séu búnar til sérleiðir fyrir tiltekna aðila. Ég fagna því líka, sem ég heyrði í ræðu hv. þingmanns, að hún áttar sig á því að ívilnunarsamningar og ýmislegt sem gert hefur verið á undanförnum árum, og er svo sem enn í gangi, gengur með vissum hætti gegn þeirri hugsun. Almennt vildi ég nefna í þessu sambandi að það sem mestu máli skiptir er að hér sé almennt búið til hagstætt skattumhverfi fyrir atvinnulíf sem gerir fyrirtækjum kleift að starfa við eðlilegar og góðar aðstæður þannig að þau skili eðlilegum afrakstri til þess samfélags sem þau starfa í, en að ekki sé verið að taka út einstakar atvinnugreinar eða einstök atvinnufyrirtæki og veita þeim sérstaka afslætti.