145. löggjafarþing — 126. fundur,  2. júní 2016.

sjúkratryggingar.

676. mál
[19:24]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég kem hér til að lýsa ánægju minni með niðurstöðuna í þessu máli. Þetta er stórt mál og auðvitað hefði maður viljað sjá að börn yrðu algjörlega gjaldfrjáls í heilbrigðiskerfinu og að eldri borgarar og öryrkjar borguðu 1/3 af því sem aðrir borga, en það verða næstu skref sem við tökum. Ég treysti því að við tökum þau. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra fyrir inngrip þeirra í málið, að koma inn með fjármuni á síðustu metrunum. Ég held að að öllum ólöstuðum megi líka þakka framsögumanni málsins, hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur, fyrir ótrúlega vinnu. Hún hefur verið vakin og sofin yfir málinu á síðustu dögum og sýnt hvers hún er megnug. Ég vil líka segja að þetta mál segir okkur og sýnir hvers við erum megnug á Alþingi Íslendinga. Það að við skulum vera búin að samþykkja fimm stór mál út úr velferðarnefnd, ein af stærstu málum ríkisstjórnarinnar, á einu áliti í öllum málum er stórkostlegt afrek, finnst mér, á þessum síðustu og verstu tímum. Ég óska okkur öllum til hamingju með það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)