145. löggjafarþing — 126. fundur,  2. júní 2016.

gjaldeyrismál o.fl.

810. mál
[19:54]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Það kann vel að vera að afkastageta stjórnsýslunnar sé ekki meiri, þá eiga menn bara að segja það. En hæstv. ráðherra er vinsamlegast beðinn um að spara sér spíssfyndugheit sín og brúka þau gagnvart einhverjum öðrum en mér. Ég lýsti því yfir í ræðu minni áðan að ég styddi það, og það hefur margsinnis komið fram, að Seðlabankinn fái stjórntæki af þessu tagi og ég er sömuleiðis þeirrar skoðunar að það eigi að vera samráðsskylda við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Það sem mér ofbýður er hins vegar þessi vinnubrögð, vegna þess að hér er um mikilvægt mál að ræða. Ég fæ ekki betur séð en alla vega glitti í vott af iðrun í augum hæstv. ráðherra. Það er engu líkara en hann skammist sín pínkulítið fyrir vinnubrögð af þessu tagi. Hæstv. ráðherra sagði það algjörlega skýrt að vitaskuld væri óskandi að löggjafinn hefði meiri tíma til þess að fara í þetta mál á dýptina. Ég segi það alveg hreinskilnislega: Mál af þessu tagi þarf auðvitað skoðunar við. Það þyrfti (Forseti hringir.) að fá til ráðslags fleiri en bara embættismenn úr Seðlabanka og fjármálaráðuneytinu. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að leggjast gegn því að málið verði samþykkt. Þetta er þarft mál. En ég bið hæstv. fjármálaráðherra (Forseti hringir.) í fullri vinsemd og með mikilli virðingu að sýna ekki þinginu vinnubrögð af þessu tagi aftur.