gjaldeyrismál o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þær kvartanir sem hafa heyrst hérna um hvernig þetta mál kemur hingað inn á lokametrunum. Ég veit að það er enginn ánægður með að hér sé fólk í andsvörum vegna þess að nú er komið svolítið fram á kvöld, en það undirstrikar hvers vegna þreytandi er að taka við svona málum svo seint, vegna þess að auðvitað vill maður geta rætt þau. Ég segi eins og er, ég hef ekki haft neinn tíma að ráði til þess að kynna mér þetta mál til hlítar, hvað þá að bera saman þessar breytingar við lögin eins og þau eru núna. En ég hjó eftir því í ræðu hæstv. fjármálaráðherra að hugsanlega færi eitthvað af þessu inn í lög um Seðlabankann til lengri tíma. Ég sé ekki í fljótu bragði neitt um það sem fer inn í lög um Seðlabankann.
Mig langar að spyrjast meira fyrir um það hvað af þessu hæstv. ráðherra gerir ráð fyrir að gæti endað þar til lengri tíma. Ég spyr sérstaklega vegna þess að nú geri ég ráð fyrir að við lendum ekki aftur kannski alveg í nánustu bráð í því að þurfa að halda hér þingfund yfir einhverju sem liggur ægilega mikið á eða þarf að gerast með afskaplega skömmum fyrirvara, en ég geri þó ráð fyrir að að því komi að hæstv. ráðherra fari þá í frekari lagabreytingar í sambandi við þetta mál og lög um Seðlabankann. Mér þætti mjög vænt um að geta verið sem best undirbúinn fyrir þá umræðu þegar og ef af henni verður. Því þætti mér vænt um ef hæstv. ráðherra gæti svarað mér til um það. Ég vík að seinni spurningu minni í seinna andsvari.