145. löggjafarþing — 126. fundur,  2. júní 2016.

minning tveggja alda afmælis Jóns Árnasonar.

44. mál
[21:12]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Frekar en að fara í ræðu og lengja umræður þá rennur mér blóðið til skyldunnar að koma hér upp og fagna þessari tillögu sem ég tel að sé mjög makleg. Jón Árnason var einn almerkasti þjóðfræðingur sem við Íslendingar eigum vegna söfnunarstarfs síns og þjóðsagnasafn hans í mörgum bindum, þjóðsögur Jóns Árnasonar sem við tölum um í daglegu tali, er algjörlega á pari við það merkasta sem gerist, ekki bara á Norðurlöndum heldur í Evrópu. Það er algjörlega á pari við þjóðsagna- og ævintýrasöfnun Grimmsbræðra t.d. og verk á borð við Kalevala og fleiri söfnuð verk í nágrannalöndum okkar. Þannig að ég fagna þessari tillögu og heiti henni fullum stuðningi og vona satt að segja að hún fái skjótan og góðan framgang.