145. löggjafarþing — 126. fundur,  2. júní 2016.

aðgerðaáætlun gegn súrnun sjávar á norðurslóðum.

160. mál
[22:05]
Horfa

Elín Hirst (S):

Virðulegi forseti. Það er mjög ánægjulegt að sjá hvað þetta mál hlýtur góðar undirtektir hér á þingi í kvöld. Það er líklegt að loftslagsbreytingar muni koma fram hér á landi í súrnun sjávar og sérstaklega í köldum sjó eins og umlykur Ísland. Það segir sig sjálft að það getur skipt okkur mjög miklu máli ef breytingar verða á lífríki hafsins sem er okkar helsta auðlind. Rannsóknir á þessu sviði eiga að vera okkar helsta framlag á sviði loftslagsmála í framtíðinni. Við eigum að takast ötullega á við rannsóknir á þessum málum hér í norðurhöfum og ég lýsi ánægju minni með að þetta mál skuli vera í höfn.