gjaldeyrismál o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldeyrismál, lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og lögum um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, fjárstreymistæki til að draga úr neikvæðum áhrifum fjármagnsinnstreymis.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Seðlabanka Íslands. Á hátt í tveggja tíma löngum fundi hér fyrr í kvöld gafst nefndarmönnum tækifæri til að fara ítarlega yfir málið, spyrja spurninga og kynna sér efnið í þaula.
Ég ætla ekki að rekja orð fyrir orð það sem stendur í nefndarálitinu. Með málinu fylgdi allítarleg greinargerð sem er skýr og góð. Í þessu knappa áliti er ekki gerð tillaga að neinum efnislegum breytingum heldur gerir nefndin aðeins breytingu við tilvísun sem henni var bent á, að í 1. gr. komi fram tilvísun sem þurfti að leiðrétta og er ekki efnisleg breyting.
Því frumvarpi sem hér er til umræðu er ætlað að veita Seðlabanka Íslands stjórntæki til að draga úr áhættu tengdri óhóflegu fjármagnsflæði til landsins. Þetta er að mati nefndarinnar mikilvægt tæki og tímabært að það sé fært í lög. Það varð dálítil umræða um hvort nauðsynlegt væri að þær reglur sem eru hluti af þessu tæki og reglur sem Seðlabankinn setur þurfi að liggja fyrir strax í fyrramálið við opnun markaða. Það komst a.m.k. til tals og afstaða þess sem hér stendur er að það sé ákaflega mikilvægt að þessar reglur liggi fyrir, að þetta sé allt saman tilbúið og taki gildi fyrir opnun markaða í sjálfu sér verði frumvarpið að lögum hér á eftir.
Ég vil ekki orðlengja þetta frekar. Nefndin gerir ekki efnislegar breytingar. Í nefndarálitinu kemur fram það helsta, á þskj. nr. 1492, en ég vil nota tækifærið til að þakka nefndarmönnum fyrir góða vinnu í málinu og að greiða götu þess. Þetta er ákaflega mikilvægt mál, mikilvægt stjórntæki sem núna færist í verkfæratösku Seðlabankans til að verjast mögulegu innflæði á fé, eins ótrúlegt og það má virðast. Í heiminum eru nokkuð óvenjulegar aðstæður þar sem eru neikvæðir vextir í meira og minna öllum löndum í kringum okkur en tiltölulega háir vextir hér og bjartir tímar. Því er að mati sérfræðinga veruleg hætta á að hérna gæti reynt á slíkt tæki.
Ég ætla ekki að hafa mál mitt lengra að sinni. Undir álitið skrifa eftirfarandi nefndarmenn: Frosti Sigurjónsson, formaður og framsögumaður, Brynjar Níelsson, Sigríður Á. Andersen, Birgir Ármannsson, Willum Þór Þórsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Valgerður Bjarnadóttir og Katrín Jakobsdóttir.