145. löggjafarþing — 129. fundur,  8. júní 2016.

kjaramál Félags íslenskra flugumferðarstjóra.

815. mál
[15:22]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði hér á undan: Að sjálfsögðu er það þannig að nú tekur þinglega meðferðin við. Að þessari umræðu lokinni ratar málið til umhverfis- og samgöngunefndar og kemur síðan aftur til 2. umr. Þingmál eru ólíkrar gerðar og þetta mál kemur svo sannarlega hratt inn í þingið, en ég held að það muni ekki koma í veg fyrir að þingmenn geti kynnt sér efni þess og tekið afstöðu til þess.