145. löggjafarþing — 129. fundur,  8. júní 2016.

kjaramál Félags íslenskra flugumferðarstjóra.

815. mál
[15:31]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í fyrsta lagi er það alveg rétt hjá hv. þingmanni að um er að ræða mjög viðkvæmt jafnvægi þegar ákveðið er að stíga inn í deilur af þessu tagi. Það er líka jafn rétt að þegar kemur að deilum á vinnumarkaði þarf hvor aðili að sjálfsögðu að stíga varlega til jarðar. Ég held að um það þurfi ekki að vera neinn ágreiningur; og er ekki, að ég hygg.

Í innanríkisráðuneytinu voru haldnir fundir með deiluaðilum í gær. Ég var ekki sjálf á þeim fundum. Ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins ásamt fulltrúum fjármálaráðuneytisins voru á þeim fundum; fyrst með Félagi íslenskra flugumferðarstjóra og síðan með Samtökum atvinnulífsins. Ég fékk að sjálfsögðu mjög greinargóðar upplýsingar um þá fundi. Við höfum síðan verið í sambandi við Isavia vegna þessara mála. Við höfum líka fylgst mjög nákvæmlega með því hvaða aðstæður eru uppi á okkar flugumsjónarsvæði hér í loftinu fyrir ofan okkur og hvaða afleiðingar það hefði ef þetta drægist á langinn. Þegar ákvörðun er tekin um það hvort og hvenær efni sé til að stíga inn í mál af þessu tagi þá fer að sjálfsögðu alltaf fram mat á því hvað rétt sé að gera. Þá vegast auðvitað á sjónarmiðin, hversu langt geta hlutirnir gengið. Hv. þingmaður nefnir hér réttilega að þessar aðgerðir eru hugsaðar til þess að bíta. En ef þær eru farnar að bíta með þeim hætti að það sé farið að raska verulega þeim almannahagsmunum sem undir eru þá er ástæða fyrir stjórnvöld að grípa inn í.

Það er það mat sem fór fram og þetta er okkar niðurstaða.