145. löggjafarþing — 130. fundur,  8. júní 2016.

kjaramál Félags íslenskra flugumferðarstjóra.

815. mál
[21:03]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mig langar í tilefni af þeirri löggjöf sem hér er verið að afgreiða að leyfa mér að vitna í ársskýrslu ríkissáttasemjara frá árinu 2014, en það ár markaði nokkur tímamót á Íslandi vegna þess að á tímabilinu 2000–2008 var á Íslandi almennt samið um kaup og kjör án átaka. Á erfiðleikaárunum 2008–2013 var líka lítið um boðun aðgerða og nánast einstakt að af þeim yrði og kemur fram í ársskýrslu ríkissáttasemjara fyrir árið 2014 að umhugsunarvert sé að í þrígang á árinu 2014 hafi verið gripið til lagasetningar til þess að banna verkfallsaðgerðir hópa launamanna, fyrst með lagasetningu á verkfall undirmanna á Herjólfi, síðan á vinnustöðvun flugmanna hjá Icelandair og loks á vinnudeilur flugvirkja hjá sama félagi. Vandi Alþingis segir ríkissáttasemjari að sé mikill þegar taka þurfi afstöðu til þess hvort lagasetning á aðgerðir á vinnumarkaði sé réttlætanleg. Það er spurningin sem við stöndum frammi fyrir. Þar vegast á, segir ríkissáttasemjari, annars vegar réttur fólks og fyrirtækja til þess að ákveða vinnustöðvun að tilteknum reglum uppfylltum og hins vegar mat löggjafans á heildarhagsmunum þjóðarinnar eða afmarkaðs hóps hennar.

Í skýrslunni segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Afskipti löggjafans af þessum þremur málum voru ólík. Afskipti af Herjólfsdeilunni voru fyrst og fremst rökstudd á viðskiptalegum forsendum, þ.e. að útflutningur á fiskafurðum mundi skaðast drægjust aðgerðir á langinn. Í flugdeilunum má segja að bæði viðskiptaleg sjónarmið og hagsmunir þriðja aðila, þ.e. flugfarþega, hafi riðið baggamuninn. Erfitt er að halda því fram að þjóðarhagsmunir eða þjóðaröryggi hafi verið í húfi í Herjólfsdeilunni. Sama má segja um verkfallsaðgerðir flugmanna og flugvirkja þótt þar væri um að ræða mun meiri og víðtækari viðskiptahagsmuni. Í ljósi afskipta Alþingis af kjaradeilum á árinu 2014 væri gagnlegt að yfirvega við hvaða aðstæður inngrip Alþingis í kjaradeilur sé réttlætanlegt og nauðsynlegt.“

Virðulegi forseti. Mér vitanlega hafa núverandi stjórnvöld og ríkisstjórnarmeirihluti ekki með nokkru móti tekist á við þessar brýnu spurningar, þ.e. hvernig við getum ætlast til þess að hér þróist heilbrigður og uppbyggilegur vinnumarkaður þar sem ríkir traust aðila til að orð standi á meðan launafólk má ítrekað búast við því að stjórnvöld og ríkisstjórnarflokkar taki afstöðu með öðrum samningsaðilanum og setji lög á vinnudeilur. Þetta er alvarlegt mál sem við horfumst nú í augu við. Þetta er orðin háttbundin lagasetning þessarar ríkisstjórnar og enn og aftur til marks um það hvar þessi ríkisstjórn tekur sér stöðu í samfélaginu, þ.e. með þeim sem eiga og geta en ekki með þeim sem hafa ekkert að selja nema vinnuna sína.