aðgerðir í húsnæðismálum.
Virðulegi forseti. Margt hef ég gert á ævi minni en aldrei minnist ég þess að hafa sagt að menn hefðu átt að hlusta á framsóknarmenn þegar kemur að skuldamálum heimilanna. Ég hef þvert á móti gagnrýnt þann leikaraskap sem hefur einkennt aðgerðirnar og sést best í því, vegna þess að hæstv. forsætisráðherra virðist ekki enn þá vera búinn að ná því hvaða hlutverki vaxtabætur gegna og gegndu, að leiðréttingin upp á rétt um 15 milljarða á ári er nokkurn veginn jafn há og það sem ríkisstjórnin sparar sér í vaxtabótaútgjöldum með því að skera niður þau útgjöld frá því sem þau voru þegar best lét. En munurinn er sá að leiðréttingin fór að stærstum hluta til þeirra sem ekki hefðu notið réttar í vaxtabótakerfinu vegna þess að þeir voru með of háar tekjur eða áttu of mikla eign í húsnæðinu sínu eða höfðu aldrei orðið fyrir neinum skuldavanda. Það er óréttlætið sem við (Forseti hringir.) gagnrýnum og það óréttlæti er frekar fest í sessi (Forseti hringir.) núna með nýjum aðgerðum þar sem áfram er haldið (Forseti hringir.) að skera niður við þá sem raunverulega eiga við (Forseti hringir.) húsnæðisvanda og skuldavanda að stríða, en (Forseti hringir.) peningum dreift með mjög ógagnsæjum hætti.