stuðningur til kaupa á fyrstu íbúð.
Frú forseti. Mér finnst ekki við hæfi að halda þessum fundi áfram og gefa nýjum ræðumanni orðið þegar hæstv. fjármálaráðherra lætur ekki sjá sig í salnum. Mér finnst það bara ekki í lagi. Ég hvet til þess að gert verði hádegishlé og kannað hvort hæstv. fjármálaráðherra geti verið hérna við í eftirmiðdaginn þegar hann er búinn að næra sig eða spjalla við þá sem hann er að spjalla við eða var að spjalla við frammi í matsal síðast þegar ég sá hann. Hæstv. fjármálaráðherra var líka með stórt mál á dagskrá í gær og hann lét ekki sjá sig í salnum. Það var að vísu síðari umræða um þingsályktunartillögur og nefndarfólk var hér til staðar, en engu að síður hefði verið ástæða til að hæstv. fjármálaráðherra sýndi þeirri umræðu þá lágmarksvirðingu að fylgjast með henni, taka jafnvel þátt í henni, svara spurningum, en það gerði hann ekki. En hér er hann að mæla fyrir frumvarpi sem ríkisstjórnin hefur nú ekki montað sig svo lítið af, haldið skrautsýningar í Hörpunni með aðkeyptu fólki. Mér finnst það ekki við hæfi að hæstv. fjármálaráðherra skuli ekki sitja í salnum og vera í umræðunni. Ég sé að hann er kominn í dyrnar með kaffibollann og verði hæstv. ráðherra að góðu, en ég ætlast til þess að hann sitji hér í salnum það sem eftir er þessarar umræðu. (Gripið fram í.) Já. Það er ekki til mikils mælst.