145. löggjafarþing — 135. fundur,  18. ág. 2016.

fjármálastefna 2017--2021.

741. mál
[14:15]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég mun sitja hjá við atkvæðagreiðslu þessa máls og líka næsta máls. Ég tel að sá árangur sem við höfum náð á þessu kjörtímabili hafi byggt á áherslum stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um að lækka skuldir heimilanna og hækka laun fólks. Sú vinna sem ég hef verið að vinna hefur verið í samræmi við þann stjórnarsáttmála. Hér er hins vegar verið að tala um næsta kjörtímabil. Það liggur ekki fyrir neitt samkomulag um það með hvaða hætti er ætlunin að standa að því samstarfi ef það verður. Ég hef látið vita af þessum fyrirvara mínum í gegnum allt þetta mál, að það sé ekki hugað nægilega vel að lífeyrisþegum, barnafjölskyldum, og mér þykir leitt að ég skuli ekki geta stutt þetta mál.