145. löggjafarþing — 135. fundur,  18. ág. 2016.

fjármálastefna 2017--2021.

741. mál
[14:22]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég ætla að vona að hæstv. forsætisráðherra farnist ekki eins og Ikarusi forðum að hann fljúgi svo nálægt sólinni í gleði sinni yfir eigin afrekum að bráðni af honum vængirnir. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að leiðrétta hæstv. forsætisráðherra, þetta er að sjálfsögðu ekki í fyrsta sinn sem menn vinna með ríkisfjármálaáætlanir til meðallangs tíma en í nýju lögformlegu samhengi.

Það er rétt, Íslendingar hafa náð ótrúlega vopnum sínum efnahagslega frá hinu skelfilega hruni sem varð hér haustið 2008, en þar er um samfellt bataferli að ræða frá síðari hluta árs 2010. Þeir sem fyrst og fremst eiga þakkir skildar og eiga mestan heiðurinn af þessu er íslenska þjóðin sem hefur sýnt þrautseigju og þolgæði í gegnum þá erfiðleika og er að uppskera vonandi í samræmi við það. Það er frekar ódýrt að ætla að skreyta sig rétt fyrir kosningar með lánuðum fjöðrum frá þjóðinni eða öðrum sem með erfiði sínu hafa lagt af mörkum í að koma okkur þangað sem við erum komin, það er svona frekar ódýrt. Ef það á að vera eina innlegg framsóknarmanna til þessarar kosningabaráttu, að slá eign sinni (Forseti hringir.) á erfiði þjóðarinnar og allra annarra þá óska ég þeim alls góðs með það.