stuðningur til kaupa á fyrstu íbúð.
Frú forseti. Það er rétt hjá hæstv. fjármálaráðherra að við innleiddum þrepaskipt tekjuskattskerfi og náðum með því að hlífa tekjulægsta hópnum algjörlega við skattahækkunum. Ég þakka kærlega fyrir, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, að staðfesta það. Það er nefnilega alveg hárrétt, við gerðum það meðvitað og það gekk fullkomlega upp í því kerfi sem við tókum upp. Við mátum það svo að tekjulægsti hópurinn þyldi alls ekki auknar álögur, en hinir sem aðeins breiðari bök hefðu yrðu að leggja meira af mörkum á meðan við værum að reisa landið úr rústum. Við reyndum að finna sanngjarna dreifingu byrðanna, skattbyrðanna, og við höfum fengið það staðfest og viðurkennt af fjölmörgum aðilum. Af því að hæstv. forsætisráðherra talar núna um alþjóðlega athygli á afrekum sínum vil ég nefna að við höfum fengið það uppáskrifað og staðfest frá OECD, frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, frá sérstökum sendifulltrúa mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, að Ísland valdi leið út úr kreppunni sem tókst mjög vel hvað það varðar að hlífa veikast settu hópunum við erfiðleikunum.
Hæstv. fjármálaráðherra er óánægður með dæmið. Mér datt í hug að reynt yrði að fara í útúrsnúninga af þessu tagi, að það megi alls ekki tala um þetta svona því að þetta sé sjálfsaflafé fólks. Ég er ekkert að tala um þann hlutann sem fólkið mundi eiga sjálft inni í sínum séreignarsparnaði. Ég er að tala um skatteftirgjöf ríkisins og sveitarfélaganna. Það eru fjármunir úr ríkissjóði rétt eins og allir aðrir fjármunir og þær krónur eru ekki dregnar í sundur þar. Það er því fullkomlega gilt að stilla dæminu upp eins og ég gerði hér áðan. Í þessum skilningi, þegar þú skoðar hvernig er verið að deila út opinberu skattfé, aðstoð frá ríki og sveitarfélögum, þá er það svona, að það á að mismuna ungum fjölskyldum í landinu grimmilega, sumar eiga að fá 0 kr. ef þær ætla að reyna að ráðast í íbúðakaup, aðrar 2 milljónir og þær best settu 4 milljónir.