störf þingsins.
Herra forseti. Það er ekki svo eins og hv. þingmaður Framsóknarflokksins kom inn á áðan að einungis það fólk sem nú er við völd geti klárað þau verkefni sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir þingið. Það geta nú aðrir þingmenn gert og ráðherrar. Það er ekki svo að enginn annar geti búið til eða stutt við hvort sem það er verðmætasköpun, hagvöxt eða stöðugleika. Þegar við tölum um stöðugleika þá hlýtur maður að hugsa til þess atviks sem átti sér stað í gær, þ.e. þegar hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra ákvað að sitja hjá við afgreiðslu um stefnu ríkisstjórnarinnar til margra ára. Hún ætlar samt að leggja fram einhverja áætlun á eftir um fjölskyldustefnu. Þetta er mjög sérstakt. Er það hennar prívatstefna eða er það stefna ríkisstjórnarinnar? Nú fer maður að hugleiða það.
Það kom fram hjá formanni Öryrkjabandalagsins að félags- og húsnæðismálaráðherra hafi staðið með öllum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar fram til þessa þannig að hún geti ekki einungis kennt fjármálaráðherra um stöðu málsins eins og það lítur út núna, hún hafi sjálf tekið afstöðu og ákvarðanir á kjörtímabilinu sem miða að því að halda lífeyrisþegum í fátæktargildru.
Hæstv. forsætisráðherra telur afstöðu félags- og húsnæðismálaráðherra hvorki vera vantraust á sig né hæstv. fjármálaráðherra. Utanríkisráðherra er sannfærð um að flokkurinn verði áfram í ríkisstjórn og hafnar því að flokkurinn tapi atkvæðum vegna formannsins.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki alveg í hvaða veröld þetta fólk lifir. Ríkisstjórnin er umboðslaus og hún verður að fara að átta sig á því. Hún er umboðslaus vegna Panama-hneykslisins og vegna þess sagði forsætisráðherra af sér og fleiri hefðu átt að gera það og ríkisstjórnin hefði átt að fara frá á þeim tíma og sjá sóma sinn í því. (Forseti hringir.)
Það er alveg ljóst að við þurfum að kjósa og sem betur fer er búið að ákveða kjördag, því að hér eftir sem hingað til (Forseti hringir.) snýr þetta að því að halda trúverðugleika. Þessi ríkisstjórn er algerlega rúin trausti.
Tengd mál
- Fjármálaáætlun 2017--2021, 740. mál, þingsályktunartillaga.
- Fjármálastefna 2017--2021, 741. mál, þingsályktunartillaga.