145. löggjafarþing — 136. fundur,  19. ág. 2016.

Umhverfisstofnun.

674. mál
[11:58]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um Umhverfisstofnun. Gildandi lög um Umhverfisstofnun eru frá 1. janúar 2003 og voru þau sett samhliða stofnun Umhverfisstofnunar. Lögin vísa til þess að stofnunin fari með þau verkefni sem Hollustuvernd ríkisins, Náttúruvernd ríkisins og embætti veiðistjóra voru falin samkvæmt tilteknum lögum sem talin eru upp. Í lögunum frá 2003 er hins vegar hvorki fjallað efnislega um þau mörgu og fjölbreyttu hlutverk sem stofnunin hefur með höndum né tilgreind verkefni hennar. Tilefni þessa frumvarps er því sú þörf sem er til staðar að tiltaka með skýrari hætti í löggjöf um Umhverfisstofnun hvaða hlutverki hún gegnir og þau helstu verkefni sem hún hefur með höndum en þau eru tilgreind í ýmsum sérlögum sem stofnunin vinnur eftir. Ríkisendurskoðun hefur bent á mikilvægi þessa og er það mat þeirrar stofnunar að full þörf sé á að hlutverk Umhverfisstofnunar verði samþætt og tiltekið með skýrari hætti í löggjöf um stofnunina.

Frumvarp það sem er hér til umræðu var unnið í samvinnu við Umhverfisstofnun. Við þá vinnu var m.a. litið til laga um Samgöngustofu sem sett voru í lok árs 2012. Í frumvarpinu kemur fram að Umhverfisstofnun er ríkisstofnun sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra og fer með stjórnsýslu og framkvæmd umhverfis- og náttúruverndarmála.

Meginefni frumvarpsins er umfjöllun um hlutverk stofnunarinnar og skipulag, helstu málaflokka sem Umhverfisstofnun hefur umsjón með og þau helstu verkefni sem þar falla undir, skyldur til samráðs og upplýsingaskipta og þær heimildir sem stofnunin hefur, svo sem til beitingar réttarúrræða og til gjaldtöku. Umhverfisstofnun hefur það almenna hlutverk að stuðla að hreinu og heilnæmu umhverfi og vernd og fjölbreytileika náttúru með markmið sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi.

Eins og kveðið er á um í frumvarpinu veitir stofnunin ráðherra aðstoð við undirbúning að setningu laga og reglugerða á starfssviði sínu og aðstoð við stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfis- og náttúruverndarmálum og í alþjóðlegu samstarfi. Meðal verkefna Umhverfisstofnunar eru verkefni á sviði mengunarvarna, náttúruverndar, almannaréttar og útivistar, verndunar og sjálfbærra veiða, sjálfbærrar neyslu og hollustuhátta, efnamála, loftslagsmála, loftgæða, verndunar vatns og hafs og upplýsingagjafar.

Verði frumvarp þetta að lögum munu lögin hafa það markmið að samþætta og skýra hlutverk stofnunarinnar mun betur en gert er í núverandi löggjöf og felur það í sér skýra umgjörð utan um þau hlutverk og verkefni Umhverfisstofnunar sem tilgreind eru í sérlögum. Frumvarpið felur þar af leiðandi ekki í sér nein efnisleg nýmæli. Frumvarpinu er ætlað að auðvelda stjórnvöldum, haghöfum og almenningi yfirsýn og stuðla að betri samþættingu umhverfissjónarmiða við önnur málefnasvið.

Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.