fjölskyldustefna 2017–2021.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um fjölskyldustefnu fyrir árin 2017–2021 með áherslu á börn og barnafjölskyldur. Tillagan er unnin samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Haustið 2013 skipaði ég verkefnisstjórn sem falið var að móta fjölskyldustefnu með það að markmiði að tryggja félagslegan jöfnuð, að allar fjölskyldur njóti sama réttar og sé ekki mismunað. Í fjölskyldustefnunni sem hér er lögð fram eru forvarnasjónarmiðin allsráðandi en m.a. er leitað leiða til að tryggja efnahagslegt öryggi og auka stuðning við umönnun og samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Leiðarljós við mótun fjölskyldustefnu með áherslu á börn og fjölskyldur þeirra var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins eða barnasáttmálinn sem lögfestur var hér á landi snemma árs 2013 að frumkvæði hv. þm. Helga Hjörvars. Grunngildi sáttmálans um réttindi barna til verndar og umönnunar og þátttöku endurspeglast í stefnunni. Hún miðar að því að styðja við fulla innleiðingu barnasáttmálans og að tekið verði mið af honum við alla ákvarðanatöku og í starfi varðandi börn. Mörg mikilvæg skref hafa verið stigin við innleiðinguna en gera má betur. Hefur barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna m.a. gagnrýnt að ekki hafi verið unnið með markvissum hætti að innleiðingu sáttmálans hér á landi.
Börn eru viðkvæmur hópur sem þarfnast sérstakrar verndar. Þegar lífskjör og lífsgæði hinna ýmsu hópa eru borin saman kemur í ljós að á Íslandi býr hærra hlutfall barna á heimilum undir lágtekjumörkum en almennt gerist. Árið 2014 bjuggu 10% barna á heimilum sem voru með tekjur undir lágtekjumörkum, samanborið við 7,9% allra landsmanna. Sama á einnig við um aðrar lífskjaramælingar en sama ár töldu 53% heimila með börn erfitt að láta enda ná saman, samanborið við 39,3% allra heimila. Alls töldu 79,5% einstæðra foreldra erfitt að láta enda ná saman. Með það að markmiði að jafna stöðu allra heimila í landinu og leitast við að tryggja að ekkert barn búi við fátækt legg ég til að lagaumhverfi sem lýtur að efnahagslegum stuðningi við barnafjölskyldur verði endurskoðað og einfaldað á þann veg að greiðslur vegna barna taki mið af heimilistekjum í stað stöðu foreldra. Þetta mun auka jafnræði og gera að verkum að foreldrar með lágar tekjur eigi allir sama rétt á bótum, þar með taldir tekjulágir foreldrar á vinnumarkaði.
Við gerð tillagna þessa efnis þarf að tryggja að umgengnisforeldrar eigi rétt á stuðningi vegna framfærslu barns með sama hætti og foreldrar sem deila lögheimili með barni. Þá ber þess að geta að ný húsnæðislög styðja við markmið fjölskyldustefnu um jafnari lífskjör hópa samfélagsins. Þessar áherslur endurspeglast ekki hvað síst í nýjum lögum um húsnæðisbætur sem afgreidd voru frá Alþingi fyrr í sumar með stuðningi allra þingflokka.
Tillaga til þingsályktunar um fjölskyldustefnu með áherslu á börn og barnafjölskyldur er forvarnamiðuð en þar er lögð áhersla á að ýmiss konar fræðslu og forvarnastarf verði samhæft og eflt. Mikilvægi öflugs forvarnastarfs verður seint ofmetið en það þarf að sníða að ólíkum hópum. Ef snemma er gripið inn í með fræðslu fyrir foreldra stuðlar það m.a. að því að þeir geti tryggt börnum sínum bestu mögulegu uppvaxtarskilyrði. Með öflugri og samhæfðri fræðslu fyrir fagfólk um áhættuþætti í lífi barna má efla vernd þeirra en mikilvægt er að þeir sem starfa með börnum beri kennsl á vandann og þekki úrræði og leiðir til að aðstoða barnið og fjölskyldu þess.
Að lokum þarf að tryggja börnum og foreldrum fræðslu um helstu áhættuþætti og hvers kyns ofbeldi, áfengi og vímuefni, netnotkun og kynheilbrigði. Þannig má koma í veg fyrir vanda en einnig miðla þekkingu til að draga úr skaða þegar vandinn er til staðar. Notkun ýmissa tauga- og geðlyfja er mikil hér á landi og má leiða að því líkur að öflugt forvarna- og fræðslustarf leiði til sparnaðar þar sem það dragi úr kostnaði vegna sérfræðiþjónustu og lyfjanotkunar. Þannig er til mikils að vinna en með öflugu og samhæfðu forvarnastarfi má á sama tíma bæta nýtingu fjármagns og auka lífsgæði komandi kynslóða.
Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi hefur mikið forvarnagildi en rannsóknir hafa leitt í ljós að fjárhagsstaða foreldra hefur áhrif á þátttöku barna í slíku starfi og eru skýrar vísbendingar um að börn efnaminni foreldra hafi takmarkaðri aðgang að frístundastarfi en börn þeirra foreldra sem hafa meira á milli handanna. Mikilvægt er að fundnar verði leiðir til að tryggja að öll börn hafi sömu möguleika til þátttöku í frístundastarfi og gæta þess að efnahagur hafi þar ekki áhrif. Einnig þarf að tryggja nægt framboð frístunda á sumri sem og vetri. Foreldrar bera ábyrgð á uppeldi barns og þroska en tryggja verður stuðning við þá og auðvelda þeim þannig að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Með setningu laga um fæðingarorlof og foreldraorlof árið 2000 varð grundvallarbreyting á stöðu kynjanna á vinnumarkaði en eftir gildistöku þeirra tóku feður fæðingarorlof í sífellt meira mæli. Árið 2008 var svo komið að umsóknir feðra voru 90 á móti hverjum 100 umsóknum mæðra, sem er einsdæmi í heiminum. Eftir að byrjað var að skerða hámarksgreiðslur til foreldra í fæðingarorlofi árið 2009 vegna erfiðrar stöðu ríkisfjármála hefur þeim feðrum fækkað jafnt og þétt sem hafa nýtt rétt sinn til fæðingarorlofs. Ætla má að þessi þróun sé andstæð markmiðum laganna en öll börn eiga rétt á samveru og umönnun beggja foreldra og því mikilvægt að opinber stuðningur miði að því að tryggja þann rétt á sama tíma og foreldrum er auðveldað að samþætta fjölskyldu- og atvinnulíf. Þrátt fyrir að fæðingartíðni hér á landi sé með því hæsta sem þekkist í Evrópu hefur hún farið lækkandi undanfarna áratugi og nú er svo komið að fæðingartíðni dugar ekki til að viðhalda mannfjöldanum. Þegar hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði voru sem hæstar á árunum 2008 og 2009 var fæðingartíðni hér á landi há, eða um 2,1–2,2 börn á ævi hverrar konu. Árið 2014 var fæðingartíðnin aftur á móti komin niður í 1,9 börn á ævi hverrar konu eftir að hafa verið 2 börn eða rúmlega það frá árinu 2004.
Fjölskyldustefnan tekur mið af þessum staðreyndum og gerir hún ráð fyrir að unnið verði á grundvelli tillagna starfshóps, sem hafa nú verið unnar í frumvarpsform og eru nú til umsagnar á vef velferðarráðuneytisins, um hvernig unnt sé að ná markmiðum laga um fæðingarorlof þannig að tryggja megi barni samvistir við báða foreldra sína og að foreldrum sé gert kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Vinna þarf að því að röskun á tekjuinnkomu heimila verði sem minnst þegar foreldrar leggja niður störf í fæðingarorlofi og einnig að tryggja samfellu milli fæðingarorlofs og dagvistunarúrræða þegar fæðingarorlofi lýkur. Það er líka mikilvægt, á grundvelli þessara tillagna starfshópsins, að þar sé komið tímaplan eða áætlun og menn séu að mestu leyti sammála um forgangsröðun þegar kemur að breytingum varðandi fæðingarorlofið, fyrir utan Samtök atvinnulífsins.
Í anda fjölskyldustefnu um mikilvægi forvarna og snemmtækrar íhlutunar og annars stuðnings við börn og barnafjölskyldur er lögð áhersla á að styrkja grunnþjónustu í nærumhverfi. Með breyttu og bættu skipulagi er miklu hægt að áorka innan þess ramma sem starfseminni er settur. Vinna þarf að því að auka samþættingu og samstarf milli þjónustuveitenda, svo sem Barnaverndar, félagsþjónustu, heilsugæslu, skóla, frístundaþjónustu og lögreglu og gæta þess að mál séu unnin í samráði við notendur. Þegar hafa verið stigin mikilvæg skref við að efla heilsugæsluna, t.d. með fjölgun sálfræðinga, en gera má betur. Er því lagt til að þverfaglegt samstarf verði aukið og fleiri fagstéttir ráðnar inn í heilsugæsluna en þar starfa nú. Aðgengi að snemmtækri fjölskylduráðgjöf og sérfræðiþjónustu hefur verið ónógt hérlendis en með öflugri grunnþjónustu má bæta aðgengið og þannig efla forvarnir og koma í veg fyrir vandamál síðar á lífsleiðinni.
Á alþjóðaári fjölskyldunnar árið 1994 hófst vinna við fyrstu og einu fjölskyldustefnuna sem ríkið hefur mótað hér á landi. Stefnan var samþykkt á Alþingi tveimur árum síðar þar sem m.a. var lögð áhersla á að sveitarfélög settu sér fjölskyldustefnu. Þegar horft er yfir þau 20 ár sem liðin eru sést að margt hefur áunnist. Á tímabilinu hefur samfélagið tekið miklum breytingum og því má með sanni segja að tími hafi verið kominn til að endurskoða og móta heildstæða stefnu í málefnum fjölskyldunnar með börn í forgrunni. Slíkt samræmist einnig lögfestingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hér á landi og styður við innleiðingu hans.
Ég leyfi mér því að leggja til, hæstv. forseti, að tillögu til þingsályktunar um fjölskyldustefnu með áherslu á börn og barnafjölskyldur verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og til 2. umr.