vinna ráðuneyta eftir fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Ég hef lesið tölurnar. Það sem ég hef séð er að þær standast ekki á. Það munar milljörðum á ríkisfjármálaáætlun og samgönguáætlun þegar þetta kemur fram hér á þingi. Eftir hvoru er farið? Undir velferðarráðuneytið heyra risastórir málaflokkar. Eftir hvaða stefnu er verið að vinna þar þegar ráðherrann styður ekki stefnu og áætlun ríkisstjórnarinnar? Það er virðingarvert að hugsa til langs tíma, ég ætla ekki að neita því, þótt ég hafi ekki stutt efnislega eða minn flokkur þessa áætlun eða verið sammála þeim áherslum sem þar birtust. Það er jákvætt að horfa til lengri tíma. En maður hlýtur að velta fyrir sér og maður hlýtur að spyrja: Við hvað á að miða þegar tölurnar stangast á? Hvort er farið eftir áætlunum fjármálaráðuneytisins eða innanríkisráðuneytis þegar kemur að samgöngumálum?