störf þingsins.
Virðulegi forseti. Núna er rólegt á þingi, eins og maður segir. Hér er ekkert uppnám í gangi, hér koma menn ekki í hrönnum í brjálæðiskasti og ausa svívirðingum yfir hver annan. Hér er allt svona ágætt og mönnum líður vel. Það er tilefni, finnst mér, til að ræða eitt sem virðist vera krónískt tabú í samfélaginu og það er sálfræðiþjónusta sem almenningur upplifir jafnan þannig að hana eigi einungis að nýta sér þegar allt er í volli, allt er í steik, og það þarf að leita sér læknis gegn einhvers konar kvilla. Ég held því fram að þetta sé röng hugsun.
Sálfræðingar eru í reynd bara sérfræðingar í mannlegri hegðun, tilfinningum og hugsanamynstri. Við mannfólkið höfum tilfinningar og höfum hugsanir og hegðum okkur á einhvern hátt, líka þegar allt leikur í lyndi, þegar allt er ágætt. Þess vegna tel ég að þessi sérfræðiþjónusta sé gagnleg, ekki bara þegar fólki líður illa eða þarf að takast á við einhverjar áskoranir heldur almennt í samfélaginu. Við eigum að hætta að líta á sálfræðiþjónustu og sálfræðinga sem einungis lækna heldur svolítið eins og þjálfara, segjum íþróttaþjálfara. Við segjum ekki að íþróttaþjálfari sé einungis nauðsynlegur þegar einhver stendur sig ekki. Hann er bara sérfræðingur í ákveðnu ferli sem hægt er að nota til að bæta hlutina.
Það er alltaf gagnlegt, fullyrði ég, að öðlast betri skilning á manns eigin hegðun og eigin tilfinningum og manns eigin hugsunum. Ég fullyrði reyndar að með því að draga úr fordómum samfélagsins sem við þingflokkur Pírata urðum fyrir nýverið eins og frægt er orðið getum við virkjað miklu betur eina mikilvægustu auðlind samfélagsins. Hún er hinn óbeislaði mannshugur, meðvitaður um sína eigin hegðun, eigin hugsun og eigin tilfinningar.