meðferð einkamála.
Hæstv. forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það er mikilvægt þegar litið er til fjármuna sem fara til gjafsóknar að litið sé til efnis máls og þeirra sem búa við bágborinn fjárhag og eiga bágt með að reka mál. Núna eru framfærsluskilyrðin, eða hvernig sem er best að orða það, tekjuviðmiðið, 2 millj. kr. Það er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að verði það að lögum verði gefin út ný reglugerð með nýju tekjuviðmiði og væntanlega þá til hækkunar. Ef við lítum á atvinnuleysislágmarkið erum við komin upp í 2,5 milljónir. Þetta mun fylgja vinnslu málsins. Verði frumvarpið að lögum þarf að breyta reglugerðinni og við þær breytingar verður auðvitað haft til hliðsjónar eðlilegt viðmið í þessu sambandi.