145. löggjafarþing — 140. fundur,  25. ág. 2016.

dagskrá fundarins og fundarsókn.

[10:35]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það sem hefur komið fram. Það er ekki aðeins í þingsalnum sem er þunnskipað, maður finnur í nefndunum að það er minni mæting. Við í minni hlutanum í fjárlaganefnd höfum rætt að ef mætingin er orðin þannig að það er minni hlutinn sem heldur uppi fundunum þá sé nú eiginlega sjálfhætt. Við héldum ekki þingflokksformannafund í þessari viku þannig að maður vissi ekki alveg út í hvað við vorum að fara en það kemur verulega á óvart hversu fá mál eru tilbúin til afgreiðslu inn í þingsal. Ég tek undir það sem hefur verið sagt að það er kominn tími til að hæstv. forsætisráðherra komi hugsanlega í pontu núna og útskýri fyrir okkur hvert framhaldið er og við hverju við eigum að búast. Staðan eins og hún er í dag, þar sem ekki er atkvæðagreiðsla tvo daga í röð vegna fjarvista, er auðvitað ekki boðleg.